Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1946, Qupperneq 72
74
þroskað og í Danmörku, en stóð fyllilega jafnfætis færeysku
korni, þrátt fyrir að sumarið, hafði verið með lakasta móti.“
Vorið 1881 leitaðist Lynge við að fá bændur þá, er næstir
bjuggu kaupstaðnum til að sá byggi og gaf þeim útsæði. Þeir
voru tregir til, og báru því við í fyrsta lagi, að þeir kynnu
ekki að velja akurstæði. En er þeir Lynge og Mohr fóru um
bæina og völdu blettina, báru bændur það í vænginn, að það
væri of mikil fyrirhöfn að girða blettina og pæla jörðina,
auk þess, sem þeir spilltu með því töðufengnum. Á bæjun-
um Naustum, Kjarna, Hvammi og Kristnesi var samt sáð
korni og létu bændurnir sér annt um það. Þótt ekki væri sáð
fyrr en seint í maí var kornið komið vel upp og leit út fyrir
góða sprettu er Mohr fór frá Akureyri um miðjan júní.25)
Hefir þá verið getið þeirra tilrauna, sem sögur fara af á
18. öldinni. Rétt þegar þær voru að byrja að breiðast út
dundu skelfingar Skaptárelda og Móðuharðinda yfir landið
og bundu enda á bæði þessa framfaraviðleitni og aðra, sem
á prjónum var um þær mundir. Vel má og vera, að korn-
yrkjan hefði lognast út af fyrir því, því að margir gerðust
vantrúaðir á gagnsemi hennar, þótt stöðugt væru nokkrir,
er mæltu með henni. Meðal formælenda hennar voru Mohr
sá er fyrr getur, og Jón Eiríksson. Kemst hann svo að orði:
„Þótt kornyrkja muni naumast nokkru sinni verða höfuð-
grein í íslenzkum landbúnaði, ætti þó aldrei að missa sjón-
ar á henni með öllu, en miklu heldur á hún skilið, að vera
tekin með til stuðnings atvinnuveginum, einkum í þeim
héröðum, sem bezt eru til þess fallin, en þó ekki fyrr en
kunnátta í allri meðferð hennar, eftir legu landsins og jarð-
vegi, hefur náð nokkurri fótfestu og útbreiðslu meðal liins
betri hluta landsmanna.“2,;)
Gegn akuryrkjunni rituðu Ólafur Olavius og Stefán
Thorarensen síðar amtmaður. Leiddi Stefán gild rök að því
að grasrækt svaraði betur kostnaði en kornyrkja, jafnvel þótt
kornið næði nokkrum þroska.27) Og meira að segja Skúli
landfógeti tók í sama streng. Eftir hörmungar Móðuharð-