Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1917, Side 73
75
legt að íormenn búnaðarfélaga grensluðust eftir ósk-
um og þörfum fjelagsmanna sinna, og kæmu þeim
svo áfram.
Sambandið vill fá óskir og umsóknir, helst svo
miklar, sem það getur frekast fullnægt. pað óskar,
að fjelög og' einstakir menn hafi starfslöngun og
starfaáform, og það langar til að geta glætt löngun-
ina og beint henni í hagkvæma átt, og að geta stutt
áformin, beint eða óbeint. Sambandið styður hvers
konar umbóta- og framfaraviðleitni í búnaðarmál-
um, sem því er ekki um megn, og það álítur, að
stefni í rjetta átt. Starfsemi þess hefir óneitanlega
borið talsverða ávexti, vakið og komið á rekspöl
ýmsu, er til umbóta og framfara horfir. En það ósk-
ar að fá tækifæri til að gera meira. J?að getur að
vísu ekki unnið beinlínis f y r i r menn, en það getur
unnið m e ð þeim á ýmsan hátt. J?að getur ekki gefið
mönnum löngunina og áhugann á því að bæta eigin
kjör sín og atvinnu, en það getur fremur hlynt að
og stutt, þar sem eitthvað af þessu er fyrir. En til
þess að geta þetta, þarf það að vita um óskir og
áform manna — fá umsóknir og málaleitanir, og
mundi öllu slíku vera sint eftir ýtrustu föngum, og
við fyrsta tækifæri.
pessi athugunarkafli getur mint á sitt hvað.
Sambandið stofnar til bændanámsskeiða. pau voru
ágætlega sótt og vinsæl meðan ástæður leyfðu. Og
það er i sjálfu sjer mjög ánægjulegt. En það heitir
lika verðlaunum fyrir góða hirðingu búpenings og
áburðar. Og þetta er lítið eða ekkert notað. Nú er
það aðalstefna og verkefni námsskeiðanna, að vekja