Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1975, Blaðsíða 8
30 % hærri taxta hjá Félagi vinnuvélaeigenda en hjá ríkisstofnun-
um, fengu báðir aðilar jafn mikla hækkun nú í vor. Settu ræktun-
arsamböndin sér nú sinn sérstaka taxta með 100 % hækkun frá 21.
okt. 1974. Nú standa mál svo, að ríkisvaldið neitar að viðurkenna
þetta né ræða, en samböndin neita að vinna nema á þessum hækk-
aða takta. Þrátt fyrir þetta er þó búist við frekari viðræðum á
næstunni. Snjómoksturinn er erfiðastur til úrlausnar bæði fyrir
vegagerðina og heimamenn.
Að endingu minnti Snæþór á mikilvægi ræktunar, sem enn þyrfti
að aukast bæði að magni og gæðum.
Vilhjálmur Snædal vildi fá fram fyrir hvorn aðilann ræktunar-
samböndin væru, bændur eða vegagerðina. Ennfremur taldi hann
ófullnægjandi, að einn aðili ætti fáar og lélegar vélar til fínvinnslu
á vorin, þegar allir þurfa að vinna grænfóðurflög sín.
Sigurjón Ingvarsson þakkaði Snæþóri greinargott erindi og góð
störf að þessum málum.
Sveinn Guðmundsson svaraði fyrirspurn Vilhjálms og sagði, að
ekki hefði þótt fært að segja alveg skilið við opinbera vinnu, né
láta bændur borga hærra gjald fyrir vinnuna, þó að nú yrði það
sennilega að gerast. Sveinn benti ennfremur á samþykktir síðasta
aðalfundar um verkefni Ræktunarsambandsins.
Benedikt Sigfússon fann að því, hve tæki R.S.A. hefðu verið
bundin í vinnu hjá því opinbera og það hefði valdið bændum óþæg-
indum.
Halldór Björnsson áréttaði fyrri ummæli sín varðandi þessi mál.
Vilhjálmur Hjálmarsson tók til máls og sagði, að alls staðar væri
verið að leitast við að halda niðri töxtum og það á fleiri sviðum.
Taldi hann þó, að hér væri komið í óefni mikið og full ástæða til að
þakka þeim, sem standa í þessari baráttu. Einnig væri spuming,
hve langt ætti að ganga í því að sinna öðrum verkefnum en hjá
bændum.
Snæþór Sigurbjörnsson svaraði fyrirspurnum ræðumanna.
Stefnan væri tvíþætt, fyrst og fremst að verða við þörfum bænda og
einnig vegagerðarinnar, en það væri jafnframt í þágu bænda. Einn-
ig skýrði Snæþór frá því, að Skattstofa Vestfjarða hefði krafið rækt-
12