Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1975, Blaðsíða 21
félaga. Öðrum störfum skiptum við milli okkar svo sem henta þótti,
og var mælingastörfum skipt eftir hreppum. Jónatan Hermannsson
starfaði með okkur á fjórða mánuð, og vann hann einkum að ýmsum
mælingum.
í eftirfarandi yfirliti, er ætlun mín að gera stutta grein fyrir
þeim þáttum sem ég vann einkum að, en hætt er við einhverjum
endurtekningum á því sem fram kemur í skýrslu Páls.
Skurðamselingar.
Mælt var fyrir skurðum í 7 hreppum á Héraði. Alls námu skurða-
mælingar 73 km. En nokkur hluti þess voru eldri mælingar, sem
þurfti aðeins að yfirfara og lagfæra. Drjúgur hiuti sumarvinnunnar
var fólginn í skurðamælingum og úttekt skurða að greftri loknum.
Plógræsla.
Á síðastliðnu ári átti lokræsaplógur að fara um Múlasýslur, en
sökum þess hve seint var hafist handa, tókst ekki að ljúka þeirri
yfirferð. Byrjað var í Álftafirði og haldið um Austur-Hérað til
Borgarfjarðar, en það sem eftir er þar fyrir norðan, mun væntan-
lega verða lokið við í sumar. Skoðað var það land sem ræsa átti,
eftir því sem komist varð yfir.
Alls voru ræstir 345 km, en sökum þess, hve ræslan fór fram
á óhagstæðum árstíma, þegar tvennt hjálpaðist að, haustannir og
óvenju úrkomusöm tíð, varð heldur minna úr framkvæmdum en ella
hefði orðið.
Sá kostnaður við plógræsluna, sem kemur í hlut bænda, mátti
teljast hóflegur í fyrra, kr. 1,50 á lengdarmetra, eða 1500-2000 kr.
á ha, og er óbreyttur í ár, og því ágætlega hagstæður.
Jarðabætur.
Mæling jarðabóta fór fram siðastliðið haust, sem venja er, og
samantekt jarðabótaskýrslna í vetrarbyrjun. Sjá töflu síðar í ritinu.
Framkvæmdir í heild, eru svipaðar og verið hefur næstu ár á
undan. Nýrækt og grænfóðurrækt hafa heldur dregist saman, en
25