Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1975, Blaðsíða 75
inga á gærum og nýrmör sláturlamba, þar sem ætla má að hlut-
fallið miðað við fallþunga hafi breyttst. — Samþykkt samhljóða.
IV. Fundurinn beinir þeim tilmselum til markadóms, hvort ekki sé
rétt að leggja niður eyrnamarkið gat með tilliti til þess, að lömb
eru víða merkt í eyra með ál- eða plastmerkjum, sem orsaka gat á
eyrað. —Samþykkt með 12 atkv. gegn 3.
11. Álit allsherjamefndar.
Gunnar Guðmundsson lagði fram eftirfarandi tillögur:
I. Aðalfundur B.S.A. 1977 felur stjórninni að vinna að því við
menntamálaráðuneytið, að hreyndýrum verði stórfækkað á þessu
ári. Fækkunin fari fram á skipulegan hátt, þannig að hún nái til-
gangi sínum og í þeim sveitum, er bændur telja sig verða fyrir
mestum ágangi af völdum dýranna. — Samþykkt samhljóða.
II. Fundurinn bendir á þá staðreynd, að sveitavegir víða á sam-
bandssvæðinu eru svo lélegir, að til vandræða horfir fyrir bændur
og aðra sem bundnir eru við að koma framleiðslu sinni og rekstr-
arvörum á ákvörðunarstað.
Því skorar fundurinn á stjórn S.S.A. og þingmenn kjördæmisins
að beita sér af alefli, að frekari fj árveitingar fáist til þessara
vega. — Samþykkt samhljóða.
III. Aðalfundur B.S.A. felur stjórn sambandsins að vinna að því við
stjórn Búnaðarbanka íslands, Samvinnubanka tslands og
aðrar peningastofnanir, að hlutast til um, að þeir bændur sem eru
í byggingarframkvæmdum eigi kost á lánum, þangað til stofnlán
eru fengin til framkvæmdanna. — Tillaðan var samþykkt eftir
nokkrar umræður.
IV. Fundurinn felur stjórn sambandsins að athuga, hvort æskilegt sé
að festa kaup á stöðluðum skriðmótum til bygginga. — Samþykkt
samhljóða.
V. Aðalfundur B.S.A. trúir því ekki að óreyndu, að hreppsnefnd
Borgarfjarðarhrepps vilji ekki stuðla að búsetu þeirra Ásgeirs
Arngrímssonar og Guðmundar Sveinssonar, með því að láta þá
hafa nauðsynlegt ræktunarland. — Tillagan var samþykkt eftir
nokkrar umræður.
79