Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1975, Blaðsíða 19
Þá boðaði Sambandið, ásamt Bændafélagi Fljótsdalshéraðs, til
fundar á Egilsstöðum, um þessi mál og fleiri. Á fundinn kom for-
maður Stéttarsambands bænda, Gunnar Guðbjartsson.
Unnið hefur verið að samanburðartilraunum með eldi kálfa í
samvinnu við Búnaðarfélag íslands. Páll Sigbjörnsson hefur séð
um þessar tilraunir. Búgrein þessi stendur þó höllum fæti vegna
niðurgreiðslna á samkeppnisvörum. Athugaðar hafa verið úrbætur
þar á.
Þá var í fyrra rætt um knýjandi þörf á aukinni dýralæknaþjón-
ustu á Sambandssvæðinu. Nú hefur Alþingi samþykkt lög um nýtt
dýralæknisembætti á Suðurfjörðum og komið þannig til móts við
óskir okkar í þessum efnum.
Stjórn og fulltrúar á Búnaðarþingi hafa beitt, eftir mætti, kröft-
um sínum til áhrifa á löggjafann um breytingu ýmissa laga og
samþykki nýrra laga, þeirra er til heilla horfa fyrir bændastéttina.
Má þar til nefna frumvarp að ábúðar- og jarðalögum sem mjög
knýjandi er að fá samþykkt. Ennfremur breytingar á lögum um
ræktunar- og húsagerðarsamþykktir og framleiðsluráðslög. En því
miður, öll þessi frumvörp liggja óafgreidd i skúffum þingmanna.
Mörgu fleiru hefur verið að unnið, sumu smærra, en þó nauðsyn-
legu, svo sem gerist í okkar samfélagi. Stjórnarmenn hafa þar að
unnið, einn eða fleiri saman eftir þörfum.
Við þökkum bændafólki, starfsmönnum og öllum öðrum sem við
höfum átt skipti við, gott samstarf á árinu.
Snæþór Sigurbjörnsson.
STARFSSKÝRSLA
Páls Sigbjörnssonar, ráðunautar til aðalfundar B.S.A. 1975.
Störf mín hjá B.S.A. hafa á liðnu ári verið í sama formi og
undanfarin ár. Við Þorsteinn Kristjánsson höfum unnið saman sem
fastir starfsmenn (Hann hefur þó eytt nokkrum tíma í störf fyrir
R.S.A.). Okkur til aðstoðar á sl. sumri vann svo Jónatan Hermanns-
son eins og næsta sumar á undan. Hann vann mest við skurða- og
iarðabótamælingar eins og áður.
23