Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1975, Blaðsíða 65
— — Norðfjarðarhr.: Guðjón Hermannsson.
— — Beruneshrepps: Gunnar Guðmundsson.
— — Mjóafjarðarhr.: Vilhjálmur Hjálmarsson.
Eng-ir fulltrúar voru mættir frá eftirtöldum hreppum:
Skegg-jastaðahr., Seyðisfjarðarhr., Helgustaðahr., Reyðarfjarðar-
hr., Fáskrúðsfjarðarhr., Breiðdalshr. og Geithellahr.
Fulltrúar voru allir samþykktir og gengið til dagskrár.
1. Skýrsla stjórnar.
Snæþór Sigurbjörnsson gerði grein fyrir störfum stjórnar og
helstu viðburðum. Hann þakkaði Þorsteini Kristjánssyni, ráðunauti
fyrir vel unnin störf í þágu sambandsins og óskaði honum góðs við
nýhafinn búskap á föðurleifð sinni. Þá greindi Snæþór frá ráðningu
Péturs Jónassonar, ráðunautar, og ráðningu Magnúsar Þórðarsonar,
sem vinna mun að reikningum R.S.A. og tilfallandi vinnu á þeirri
skrifstofu.
Formaður rakti í stórum dráttum útgáfu byggðasögunnar og
þakkaði formönnum búnaðarfélaganna mikla ósérhlífni og skilvísi,
sem og öðrum aðilum, er unnið hafa þessu mikla verki vel. Nú vinna
að útkomu 4. bindis þeir Ármann, Sigurður Ó. Pálsson og Páll
Sigbjörnsson. Taldi hann þetta bindi flytja sögu búnaðarsambands-
ins auk margs annars fróðleiks. Þá ræddi form. uppbygginguna í
Möðrudal og á hvem hátt B.S.A. hefur tengst framkvæmdum þar.
Harmaði hann að sambandið þurfti að leggja fram nokkuð fé gegn
að visu góðum tryggingum.
Nú er í áætlun að taka þátt í byggingu skrifstofuhúsnæðis á Egils-
stöðum ásamt allmörgum fyrirtækjum. Enn er þetta þó aðeins í
athugun.
Búnaðarsambandið gekkst fyrir rúningsnámskeiði á Skriðu-
klaustri fyrir kennara í greininni og síðan námskeiði í Breiðdal.
Form. drap á þá kálfaeldistilraun, sem í gangi var og Páll Sig-
björnsson sá um. Væntir form. að Páll komi síðar hér á fundinn og
skýri frá því máli.
Sl. 2 ár hefur ekki lánast að koma út ársritinu, en þar er um að
kenna fámenni starfsliðsins. Ber að harma það og treysta því að
ráðin verði bót á.
69