Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1975, Blaðsíða 43
Jarðabætur og sýnataka.
Við mæling-u jarðabóta, skiptum við svæðinu í þrennt, og annað-
ist ég miðsvæðið. Nýrækt var með minnsta móti á síðasta ári, en
tiltölulega mikð var um girðingar.
Um leið og farið var um vegna jarðabótamælinga var heysýnum
safnað. Nú var mestur hluti þeirra tekinn með heybor, sem gefur
réttara sýnishorn af viðkomandi heystæðu, en þegar reytt er utan
úr henni.
Þá voru jarðvegssýni tekin á fáeinum bæjum, þar sem bændur
höfðu sérstaklega óskað eftir slíku. Sýnin voru of fá til að draga
af þeim víðtækar ályktanir, en gefa þó vísbendingu um lágt sýru-
stig jarðvegs í fjörðum og trúlega viðast meðfram sjónum.
Byggingaleiðbeiningar.
Á síðastliðnu sumri ferðaðist ég í 2 daga um Hérað, með Magn-
úsi Sigsteinssyni, bygginga- og bútækniráðunaut. Heimsóttum við
nokkra bændur sem stóðu í byggingaframkvæmdum, eða hugðu á
þær næsta sumar. Ráðlagði Magnús um ýmsa þætti bygginga, eink-
um þó varðandi fyrirkomulag og vinnuaðstöðu. Ættu slíkar leið-
beiningar að koma sér vel, og þyrftu að verða fastur liður í leið-
beiningaþ j ónustunni.
Tilraunavinna.
Lítilsháttar vann ég við tilraunir á vegum Tilraunastöðvarinnar
á Skriðuklaustri, þó í minna mæli en áður, enda hefur dreifðum
tiiraunum á vegum stöðvarinnar fækkað nú síðustu árin.
Þá aðstoðaði ég Pál lítillega við vigtanir kálfa í afkvæmarann-
sókn holdanauta, er hófst á síðasta vori.
Hrútasýningar.
Síðasta ár var svonefnt aukasýningaár, þar eð 2 ár voru liðin
frá aðalsýningu, sem haldin er 4. hvert ár á vegum Búnaðarfélags
Islands. En aukasýningar eru haldnar á vegum búnaðarsamband-
47