Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1994, Page 155
LANDSBOKASAFNIÐ 1993
155
bibliotekavdelinga i Rana og norska Riksbibliotektjenesten efndu til
í Mo í Rana um prentskil og varðveizlu efnis í stafrænu formi dag-
ana 11.-12. júní. En ýmsum þáttum í starfsemi norska þjóðbóka-
safnsins hefur verið búin þar hin bezta aðstaða í húsakosti og tækja-
búnaði og þangað ráðið fjölmennt starfslið, er sinnir verkefnum
sem viðtöku prentskila, filmun gagna og varðveizlu safnkostsins eftir
ströngustu kröfum. Gafst þátttakendum kostur á að kynna sér þá
starfsemi alla, er þarna fer fram og er mjög til fyrirmyndar.
Undirritaður sat dagana 18.-22. september ársfund forstöðu-
manna evrópskra þjóðbókasafna, er haldinn var í Þjóðbókasafninu
franska í París. A fundinum var þátttakendum m.a. sýnd nýbygging
sú hin mikla, sem þar er í smíðum yfir Bibliothéque Nationale de
France, eins og hið nýja þjóðbókasafn Frakka verður kallað. Áætlað
er, að henni verði lokið 1996.
ALÞJÓÐLEGA Regína Eiríksdóttir sótti ársfund al-
BÓKNÚMERA- þjóðlegu bóknúmeraskrifstofunnar, er
SKRIFSTOFAN haldinn var þessu sinni í Budapest í októ-
ber, og var þá skipuð í sérstakan hóp um
gerð handbókar um nýsigögn. Þá hreppti hún sérstakan styrk úr
sjóðnum Island-Finland Kulturfond til að skoða rannsóknarbóka-
söfn í Finnlandi. I þeirri ferð sat hún Norðurlandafund ISBN
haldinn í maí í Helsingfors. Loks fór Regína í kynnisför til London
fyrir styrk Bókavarðafélags íslands og skoðaði þá nýbyggingu British
Library og heimsótti Norðurlandadeild þess.
SÝNING I tilefni af 175 ára afmæli Landsbóka-
safns Islands 28. ágúst 1993 var efnt til
sýningar í anddyri Safnahússins á nokkrum sýnishornum aðfanga,
er safninu höfðu bætzt á síðustu 25 árum.
Sýningin stóð fram eftir hausti á opnunartíma safnsins, mánu-
daga - föstudaga kl. 9-19 og laugardaga kl. 9-12.
Að nokkru í tengslum við sýninguna tók Nanna Bjarnadóttir
deildarstjóri saman dálítinn kynningarbækling um Landsbóka-
safnið.
ÞJÓÐHÁTÍÐARSJÓÐS- Stjórn Þjóðhátíðarsjóðs veitti Landsbóka-
STYRKUR safni á árinu 100 þús. króna styrk til
umbúnaðar handrita.