Frjáls verslun - 01.04.1959, Page 12
Elztu og stærsta tryggingahlutafélag landsins, Sjó-
vátryggingarfélag Islands, varð nýlega 40 ára.
Var það stofnað 20. október 1918, en hóf starfsemi
sína 15. janúar 1919.
Að stofnun félagsins stóðu 24 atvinnurekendur,
en aðalframkvæmdir við undirbúning að stofnun
þess liöfðu þeir Sveinn Björnsson yfirdómslögmað-
ur, síðar forseti íslands, og Ludvig Kaaber, banka-
stjóri Landsbanka íslands.
Alliance h.f. (Jón Olafsson)
Axel V. Tulinius, yfirdómslögmaður
Asgeir Sigurðsson, konsúll
Carl Olsen, stórkattpmaður
Carl Proppé, stórkaupmaður
Garðar Gíslason, stórkaupmaður
Geo Copland, stórkaupmaður
Ilalldór Kr. Þorsteinsson, skipstjóri
Ilallgrímur Benediktsson, stórkaupmaður
Ilallgrímur Krislinsson, forstjóri
Hallgrimur A. Tulinius, stórkaupmaður
Ilaraldur Höðvarsson, útgerðarmaður
Haukur li.f. (Pétur Tliorsteinsson)
Jes Zimsen, konsúll
Joltn Fenger, stórkaupmaður
Kveldúlfur h.f. (Olafur 'I'hors, Itichard Thors)
Ludvig Kaaber, stórkaupmaður
Loftur Loftsson, útgerðarmaður
Olgeir Friðgeirsson, slórkaupmaður
-40 ára
Samband ísl. samvinnufélaga, Sighvatur Bjarnason, bankastj.,
Sveinn Björnsson, yfirdómslögm., Th. Thorsteinsson, útgerðarm.,
Víðir h.f. (Þórarinn Böðvarsson)
Af stofnendunum eða þcim sem á stofnfundi
mættu eru nú á lífi: Cari Oisen, Halldór Kr. Þor-
steinsson, Hallgrímur A. Tulinius, Iiaraldur Böðv-
arsson, Loftur Loftsson, Olafur Thors og Richard
Thors.
Fyrsti forniaður félagsstjórnarinnar var Ludvig
Kaaber, en aðrir í fyrstu stjórninni voru þeir Sveinn
Björnsson, sem var formaður árin 1924—1920, Jes
Zimsen konsúll, sem var formaður frá 1926 til
dauðadags, Hallgrímur Kristinsson forstjóri og Hall-
dór Kr. Þorsteinsson skipstjóri, sem er núverandi
formaður félagsins. Hefur hann setið í stjórninni
frá upphafi. Aðrir í núverandi stjórn eru: Lárus
Fjeldsted hæstaréttarlögmaður, Geir Hallgrímsson
hæstaréttarlögmaður, Sveinn Benediktsson fram-
kvæmdastjóri og Ingvar Vilhjálmsson framkvæmda-
stjóri.
Fyrsti framkvæmdastjóri félagsins var ráðinn
Axel V. Tulinius yfirdómslögmaður, en liann hafði
þá um nokkurt skeið rekið hér umboðsskrifstofu,
bæði fyrir sjó-, bruna- og líftryggingar. Lét hann
af störfum árið 1933 og varð Brynjólfur Stefánsson
tryggingafræðingur eftirmaður hans, en hann hafði
verið skrifstofustjóri félagsins uin skeið. Þegar
Brynjólfur lét af störfum á s.l. vetri sökum van-
heilsu tók Steían G. Björnsson við framkvæmda-
stjórastörfum, en hann hafði verið aðalgjaldkeri
frá 1926 og jafnframt skrifstofustjóri frá 1938.
(Stefán var áður hjá vátryggingaskrifstofu A. V.
Tulinius og hefur hann starfað að vátryggingum
í meira en 36 ár).
Þótt Sjóvátryggingarfélag íslands hafi í fyrstu
eingöngu tekið að sér sjóvátryggingar, eins og nafn-
ið bendir til, hefir það smátt og smátt fært út kví-
arnar og rekur nú orðið flestar greinar trygginga-
starfsemi, enda er það meðal stærstu fyrirtækja
landsins. Fulltrúar í Sjódeild eru nú þeir Hannes
Þ. Sigurðsson og Sigurður Egilsson lögfræðingur,
en deildarstjóri Axel J. Kaaber, sem jafnframt cr
skrifstofustjóri félagsins.
í tíð Axels V. Tulinius, eða 1. júní 1925, stofnaði
félagið brunatryggingadeild, en hann lagði þá niður
umboð sín fyrir dönsk brunatryggingafélög. Um
12
frjáls vekzlun