Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1959, Síða 29

Frjáls verslun - 01.04.1959, Síða 29
Vinnsla jarðefna . . . Framh. af bls. 23 Ef notaður væri innfluttur kvarzsandur í stað íslenzka ljósgrýtisins, til þess að fullnægja kísil- þörf sementsins, mætti nota óhreinni skeljasand en ella, og er hugsanlegt, að þess verði þörf í framtíðinni. Engu að síður er verksmiðjunni nauðsynlegt að eiga greiðan aðgang að kísilnámu hér lieima. Mestu afköst verksmiðjunnar eru rösklega 100.000 lestir af sementi á ári. Er það nokkru meira magn, en notað var hér á landi síðastliðið ár. Er nú verið að athuga um söluhorfur fyrir afganginn erlendis. Ef sú athugun ber tilætlaðan árangur, og erlendur markaður vinnst fyrir ís- lenzkt sement, kemur til greina að stækka verk- smiðjuna, svo að afköst hennar tvöfaldist. Mundi slík aukning draga mjög úr framleiðslukostnaði sementsins. Auk sements mun sementsverksmiðjan fram- leiða kalk til jarðvegsbóta. Perlusteinn Sumar tegundir eldfjallaglers þenjast við snögga upphitun og mynda eins konar glerfroðu. Froða þessi er svipuð vikri, en öllu léttari oftast nær. Bæði hráefnið og frauðperlurnar, sem myndast við upphitunina, hafa ldotið nafnið perlít, og virðist mega nota það nafn óbreytt í íslenzku máli. Hér er nafnið perlusteinn notað um hráefnið, en perlít um hið unna efni, gler- froðuna. Sennilega hefir þensluhæfni eldfjallaglers verið kunn nokkuð lengi. Sem dæmi þess hér á landi má vitna í Ferðabók Sveins Pálssonar, dagbók 1792, þar sem lýst er steinum úr hrafntinnu eða hrafntinnubróður á Skúlaskeiði á Kaldadal. Þegar Sveinn hefir lýst útliti bergsins, bætir hann við: „í eldi er sagt að hann ólgi fyrst í stað líkt og borax, en breytist síðan í grænleitt, óhreint gler.“ Hér er lýst þenjanlegum perlu- steini, hálfri annarri öld áður en tæknileg hag- nýting hans byrjaði. Perlusteín er hvergi að finna nema á fremur ungum eldfjallasvæðum. í Norður-Ameríku er hann til í ríkum mæli í sumum vesturríkjum Bandaríkjanna. I Evrópu hefir perlusteinn fund- izt á Islandi, lítils liáttar á írlandi, í eyjum í Miðjarðarhafi og í gríska Eyjahafinu og í Ung- verjalandi. Ahugi á notkun perlusteins tók að glæðast í Bandaríkjunum undir lok síðari heimsstyrjald- ar. Síðan hel'ir notkun lians þar í landi aukizt jafnt og þétt og er nú komin yfir 300.000 lestir (Short Tons) á ári. Þróun perlítiðnaðar í Evrópu hefir aftur á móti verið hægfara. Sennilega nota Englendingar perlít mest Evrópuþjóða, en allt eru það smá- munir í samanburði við perlítnotkun Banda- ríkjamanna enn sem komið er. 1 Bandaríkjunum eru um það bil 80% af perlítframleiðslunni notuð í pússningu. Er talið, að perlít sé nú notað í stað sands í meira en helming allrar pússningar í landinu. Annað nota- svið, þar sem perlít verður æ algengara, er ein- angrandi léttsteypa, einkum í há stálgrindahús. Þá er það notað í einangrunarplötur, hljóðdeyf- andi klæðningu og lausa einangrun. Við þenslu perlusteins verða nokkur procent af perlítinu að fisléttum, örfínum salla, sem hvorki er nothæfur í pússningu né steinsteypu. Salli þessi er nú notaður á ýmsan hátt, svo sem fægiduft, laus einangrun, jarðvegsbætir, fylli- efni ýmiss konar, í glerung á leirker, duft fyrir skordýraeitur, síufylling og þar fram eftir göt- unum. Til að byrja með var salli þessi talinn til einskis nýtur, en nú er lninn á góðum vegi með að vinna öruggan markað í samkeppni \'ið önn- ur sambærileg efni. Fyrii'spurnir um perlustein á Islandi tóku að berast hingað frá Bandaríkjunum haustið 1947. Astæðan til þess vai*, að flutningur perlusteins- ins frá vesturríkjunum til austurstrandarinnar var dýr, og stóð eðlilegri þróun perlusteins- iðnaðarins í austurhluta Bandaríkjanna fyrir þrifurn. Þá hafa fyrirspurnir um perlustein bor- izt hingað frá flestum ríkjum Norðvestur- Evrópu. Leit að perlusteini á Islandi hefir borið þann árangur, að nx'r er kunnugt um tvær stórar perlu- steinsnámur, í Loðmundarfirði og í fjallinu Prestahnúk á Kaldadal. Auk þess hefir vottur af perlusteini fundizt allvíða. Mikið hefir verið um það hugsað og rætt, hvernig helzt megi nýta perlusteinsnámurnar ís- lenzku. Perlítverksmiðjurnar í austurhluta Bandaríkjanna greiða 23—25 dollara fyrir lest- ina af möluðum og sálduðum perlusteini við F R J ÁLS V E 1( Z L U N 29

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.