Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1959, Qupperneq 33

Frjáls verslun - 01.04.1959, Qupperneq 33
r Athafnamenn og frjálst framtak Garðar Gíslason stórhaupmacSur Frjáls Verzlun hefur ákveðið að taka upp nýjan þátt, þar sem sagt verður frá uppruna og störfum ýmissa núlifandi at- hafnamanna. Þótti vel viðeigandi að Garð- ar Gíslason yrði fyrstur í þessum þætti, en hann var sem kunnugt er brautryðj- andi á mörguin sviðum athafnalífs. Eftir að greinin hafði verið skrifuð og heftið var í undirbúningi lézt Garðar Gíslason. Er þar með látinn einn þeirra manna, sem stóðu í fylkingarbrjósti á hinu mikla fram- faratímabili í sögu þjóðarinnar á fyrri hluta 20. aldar. ★ Garðar Gíslason er fæddur að Þverá í Fnjóskadal hinn 14. júní árið 1876. Foreldrar hans voru Þorbjörg Olgeirsdóttir frá Garði í Fnjóskadal og Gísli Ásmundsson hreppstjóri, en hann var hálfbróð- ir Einars í Nesi. Foreldrar Garð- ars voru stjórnsöm og fastheldin við menningarerfðir þjóðarinnar, en jafnframt opin fyrir öllum nýj- ungum, er til framfara horfðu. Börnin voru fimm, cr komust á legg, og fæddist einn sonurinn nokkru fyrir Þjóðhátíðina 1874; gekk þá vakningaralda yfir landið og var hann skírður Ingólfur eftir fyrsta landnámsmanninum. Garð- ari var svo valið nafn Garðars Svavarssonar, fyrsta norræna mannsins, scm hafði vetursetu á Islandi, og mun enginn íslendingur áður hafa borið það nafn. Námstíminn byrjaði nokkuð snemma, enda lögðu foreldrarnir áherzlu á námið. Gísli bóndi var vel menntaður á þeirra tíma vísu og kenndi börnum sínum og stundum einnig unglingum úr ná- grenninu. Síðan tók við nám á Möðruvallaskóla og cftir það heimiliskennarastörf. Vorið 1897 bauðst Garðari verzlunarstaða hjá Magnúsi Sig- urðssyni bónda og kaupmanni á Grund í Eyjafirði. Starfið var einkum fólgið í því að selja út- lenda vöru og veita móttöku af- urðum, sem verzluninni bárust og voru aðallega ull, prjónles, smjör, kjöt, gærur og mör; en peningar sáust varla. Eftir tveggja ára starf og góð kynni fékk Garðar Magnús á Grund til að aðstoða sig til að komast til útlanda. Fékk hann far með sauðaskipi, sem fór frá Akur- cyri til Englands í scj)t. 1899. 1 Englandi var ekki vinnu að fá, og ekki heldur í Kaupmanna- höfn eftir að þangað var komið og var Garðar við nám um vetur- inn og lifði mjög sparlega. Vorið eftir fékk hann vinnu í Leith í Skotlandi, hjá fyrirtæki, sem stundaði íslandsviðskipti. Eftir eins árs starf varð ekki samkomu- lag um kaupið og vinnan þar mcð búin. Virtist nú ekki annars kostur cn að hverfa heim, en þá tók Garð- ar þá djörfu ákvörðun, þrátt fyrir svo til engin efni, að stofna um- boðsverzlun fyrir íslendinga í Edinborg. Það sýndi sig, að ts- lendingar gátu náð betri viðskipt- um í Bretlandi heldur en í Dan- mörku, en samt voru erfiðleikarn- ir mjög miklir, enda fátæklega af stað farið. Á þessum frumbýlis- árum tók Garðar að nota heild- sölunafnið, og mun hafa gcrt það fyrstur mann, þar sem honum fannst það hálfgerður oflátungs- háttur að kalla lítið fyrirtæki stór- verzlun. Hið nýja fyrirtæki auglýsti í ís- lenzkum blöðum og brátt hófust nokkur viðskipti, bæði umboðs- sala og innkaup fyrir ýmsa aðila heima. En oft komu greiðslur hæg- ar inn en pantanir, bréf voru lengi á leiðinni og báru stundum lítinn árangur. Garðar fór því heim sum- arið 1902 til að treysta og efla við- skiptin; þá sá hann Reykjavík í fyrsta sinn. Allvel gekk að inn- heimta skuldir og útvega ný við- skiptasambönd og tók nú verzl- unin að dafna. Árið 1905 var ráð- inn sérstakur umboðsmaður í Reykjavík, en 1909 fluttist Garðar til Reykjavíkur með fjölskyldu sína, en hann hafði kvænzt árið 1902, Þóru Sigfúsdóttur frá Espi- hóli í Eyjafirði. Garðar Gíslason tók nú við fullri stjórn heildverzlunar sinnar í Reykjavík. Nokkrn síðar lét liann byggja „Skjaldborg“ við Skúla- götu og flutti þangað vörugeymsl- FRJÁLS VERZLUN 33

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.