Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1959, Page 35

Frjáls verslun - 01.04.1959, Page 35
Fyrsta stjórn Félags írímerkjasafnara: Fremri röð: Sigurður Þorsteinsson, Guido Bernhöft og Jónas Hallgrímsson. — Aftari röð: Guðmundur Arnason og Magni R. Magnússon saman og höldum uppboð á frímerkjum og ræðum um frímerkjasöfnun. Síðan er drukkið kaffi, og svo er eftir á rabbað urn sameiginleg áhugamál. Fundir ]>essir eru haldnir í Tjarnarcafé, uppi á loftinu, og eru mjög vel sóttir og nrjög ánægjulegir. Allt að ])ví 50% skráðra félaga koma á ]>essa fundi, og svo til undantekningarlaust eru allir komnir á auglýstum fundartíma. Auk þessara funda höldurn við öðru hverju skipti-fundi og þá eiugöngu á laugardögum. Á fund- um þessum koma félagsmenn saman til þess að skipta á frímerkjum, og eru þeir haldnir i Garða- stræti 8. Menn koma þarna með þau merki, sem þeir hafa ekki not fyrir og vilja losna við í skiptum fyrir önnur, sem þá vantar, og eru fundir þessir ákaflega gagnlegir, því að nrenn eiga oft verðmæt mcrki í meira en einu eintaki og geta ])annig með því að koma og bera saman bækur sínar, fullkomn- að söfnin hver hjá öðrum.“ „Fyrir um það bil hálfu ári var haldin frímerkja- sýning hér i Reykjavík. Vildir þú ckki segja okkur eitthvað frá henni?“ „Já við lögðum út í það á síðastliðnu hausti að halda hér frímerkjasýningu, og var hún haldin í Bogasal Þjóðminjasafnsins frá 27. september til 12. október. Var ])essi sýning hin fyrsta sinnar tegund- er, sem haldin hefur verið hér á landi, og' var af þeim sökum töluverður vandi búinn þeim mönn- um, sem fyrir sýningunni stóðu. Að mínu áliti tókst sýningin mjög vel og sóttu hana um 4000 manns, sem má teljast mjög gott. Það, að sýningin tókst svo vel, má einkum þakka mjög góðu starfi sýning- arnefndarinnar, en formaður hennar var Jónas Hall- grímsson, og með lionum störfuðu Guðmundur Árnason og Leifur Kaldal í nefndinni. Þór Þorsteins var framkvæmdastjóri og Sigurður Ágústsson um- sjónarmaður sýningarinnar. Allir þessir menn unnu mjög gott og óeigingjarnt starf í sambandi við ])essa sýningu.“ „Ilvað finnst þér, Guido, að mæli helzt með því, að menn taki upp frímerkjasöfnun?“ „Af cigin reynslu myndi ég segja, að frímerkja- söfnun sé ákaflega skemmtileg tómstundaiðja. Hún er að ýmsu leyti mannbætandi, því hún útheimtir nákvæmni, góða nmgengni og mikla reglusemi, og þeir, sem rækta þessa kosti, eru betri menn eftir. Auk þess kynnist maður mörgum mönnum, bæði innlendum og útlendum, sem hafa sömu áhugamál, og stofnast oft til varanlegrar vináttu. En sérstak- lega vil ég benda á, að fyrir unglinga er þessi tóm- stundaiðja ákaflega æskileg, því að hún gefur ]>eim, á þeim árum, sem skapferli þeirra er að mótast, ærið viðfangsefni og heldur huga þeirra u]>pteknum við menningarstarf og gerir þá tvennt í senn, að forða þeim frá óæskilegu iðjuleysi og þroska ])á kosti, scm ég nefndi áður. Því má heldur ckki glcyma, að gott frímerkjasafn er mikils virði, og er því þeim tíma og því verðmæti vel varið, sem í þessa söfnun fer.“ Frjáls Verzlun þakkar Guido fyrir þá vinsemd að segja okkur frá því merka starfi, sem unnið er í sambandi við frímerkjasöfnun hér og hvetur ])á les- endur sína, sem hafa áhuga á að stunda þessa söfn- un, til þess að liafa samband við Félag frímerkja- safnara, sem ge.tur gefið upplýsingar um ýmsa ]>ætti þessa tómstundastarfs. FUJÁLS VERZLUN 35

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.