Frjáls verslun - 01.04.1959, Side 38
Nefndin hefur á ;ið ski])a einum föstum starfs-
manni, en ræður aðstoðarmenn tíma og tíma, eftir
því sem fjárráð leyfa.
Verkefni, sem bíða úrlausnar, eru ótal mörg, og
væri vafalaust liægt að spara bændum mikið og
stuðla meira að bættum vinnubrögðum, ef starfs-
lið nefndarinnar yrði aukið. En bændur geta gcrt
mikið sjálfir í því að gera sér grein fyrir, hvers
vegna sumir afkasta meira verki en aðrir.
Það er fróðlegt að sjá tvo menn hirða að öllu
leyti um sextíu kýr og þurfa ekki til þess nema tíu
klukkutíma vinnu á dag, en víða annars staðar þai'f
þrjá til fjóra menn til að vinna sama verk. Al-
kunna er það, að sumir einyrkjar hafa allt að þrjú
hundruð fjár, þó að flestum l>yki nóg að sjá um
helmingi færra fé. Þó að aðstöðumunur geti ráðið
miklu. er j)ó í mörgum tilfellum meira að þakka
hagsýni í vinnubrögðum og snilli við að koma
þaiinig fyrir tækjum og útbúnaði, að vinnan verði
sem auðveldust.
Bóndinn er í raun réttri ákvæðisvinnumaður og
fær borgað eftir afköstum.
Bóndinn á þó að sjálfsögðu meira undir afköst-
um en þeir, sem vinna hjá öðrum, þar sem hann
hefur stóran höfuðstól bundinn í búinu.
Enginn efast um dugnað og elju bændastéttar-
innar. Hins vegar geta flestir létt sér mörg störf
með því að kynna sér, hvernig aðrir vinna sömu
verk og hagnýta það, sem lil bóta horfir.
Erimli þessu var valið lieitið Vinnubrögð. Til-
gangur minn var ekki sá að kenna neinum lil verka.
Hafi einhverjir undir lestrinum farið að liugsa um,
hvernig gera mætti hlutina einfaldari og auðveld-
ari, hvernig auka mætti framleiðsluna án aukins
tilkostnaðar, er tilganginum náð.
Séð yfir hinn stóra og glæsilega veitingasal í Lido
Nýr veitingastaður var opnaður í Reykjavík 13..
febrúar s.l. og ber hann hið alþjóðlega heiti; LIDO.
í veitingasalnum, sem er á efri hæð hins nýja
verzlunarhúss Austurvers, geta matazt samtímis
450 manns. Hafa margir iðnaðarmenn lagt þarna
gjörva hönd að verki og unnið verk sitt af stakri
prýði og á mjög skömmum tíma.
Eigendur veitingahússins cru hjónin Ingibjörg
og Þorvaldur Guðmundsson. Þorvaldur er vel kunn-
ur fyrir stórhug og fyrirmyndar-rekstur á fyrirtæk-
inu „Síld & Fiskur“ og Þjóðleikhúskjallaranum á
undanförnum árum.
38
FRJÁLS VF.RZLUN