Frjáls verslun - 01.04.1959, Side 47
AUSTURVER
Kjörbúðir ryðja sér æ meir til rúms hér á landi,
og virðist það rekstrarfyrirkomulag henta í flestum
greinum verzlunar og hafa mikla kosti fram yfir
eldra skipulag, þar sem hægt er að koma því við.
Nýjasta verzlun þessarar tegundar hér í bæ var
opnuð laugardaginn (i. febrúar s.l. Er hún til húsa
í verzlunarhúsnæði við Miklubraut og Stakkahlíð,
sem er eign Veggs h.f., en það er félagsskapur
smásöluverzlana í Reykjavík. Þessi nýja kjörbúð
nefnist Austurver og er eign samnefnds hlutafélags,
sem samanstendur af eigendum sérverzlana í hús-
næðinu. Stjórnarformaður félagsins er Ólafur Þor-
grímsson, lirlm. Framkvæmdastjóri Austurvers, sem
jafnframt hefur tekið við rekstri Melabúðarinnar,
er Sigurður Magnússon, kaupmaður, form. Félags
matvörukaupmanna.
Austurveri er skipt niður í deildir: Kjörbúð, cr
verzlar með kjöt-, nýlendu- og hreinlætisvörur. Gólf-
flötur þeirrar verzlunar er 130 mV Auk þcss er af-
greiðslu-, innpökkunar- og eldhússaðstaða á 80 nd
giilffleli. í kjallara eru geymslur um 130 m* að gólf-
fleti. í verzluninni vinna sjö manns og er Hreinn
Halldórsson verzlunarstjóri. Kjörbúðin er öll hin
glæsilegasta og mjög haganlega innréttuð.
Auk kjörbúðarinnar eru þarna fiskbúð, sem er
útsala frá fiskverzluninni Sæbjörgu, og brauða- og
kökugerð, sem Sigurður Jónsson bakarameistari er
eigandi að. Mjólkurbúð mun einnig verða á sama
stað, en hún er ekki tilbúin enn. Mjólkursamsalan
mun starfrækja þá deild og verður hún með kjör-
búðarsniði; fyrsta mjólkurbúð þeirrar tcgundar hér-
lendis. Engin brauð eða kökur verða þar til sölu,
aðeins mjólk og mjólkurafurðir.
Að lokum má nefna söluturn, sem starfræktur
er á vegum kjörbúðarinnar, og verzlar með öl, gos-
drykki, sælgæti tóbak og blöð, og hefur oj)ið til
kl. 23,30 á kvöldin.
Verzlunarhús það, sem Veggur h.f. hefur reist,
er eitt hús af þremur, sem fyrirhugað er að reisa
á lóðinni. Er ætlunin að þarna rísi upp í framtíð-
inni vcrzlunarkjarni eða miðstöð, þar seni staðsett-
ar verði ýmsar sérverzlanir og þjónusta fyrir ört
vaxandi borgarhverfi. Frjáls Verzlun árnar eigend-
um fyrirtækjanna allra heilla með þetta glæsilega
verzlunarhúsnæði.
Kjörbúð Austurvers
F n ,T A L S Vt'RZLUN
47