Frjáls verslun - 01.08.1967, Síða 3
FRJÁLS VERZLUN
3
mmm
Það mun nú vera um aldaríjórðung-
ur, sem við undirritaðir höfum að meira
eða minna leyti átt samleið með
„Frjálsri verzlun", ýmist verandi í út-
gáfustjórn, ritstjórn eða ritað í blaðið.
Það hefur gengið á ýmsu með útkomu
og afkomu blaðsins á þessu timabili,
enda jafnan unnið að því í hjáverkum
af áhugamönnum einum. Þrátt fyrir
það er „Frjáls verzlun" nú eitt elzta
tímarit landsins.
Við höfum jafnan keppt að því, að ritið
vœri trútt sínum titli, að vera málsvari
frjálsrar verzlunar og almenns athafna-
frelsis, og var vissulega ekki vanþörf
að minna á þcer hugsjónir á tímum
hafta og vaxandi opinberra afskipta af
atvinnumálum og viðskiptum. — „Frjáls
verzlun" kann að hafa verið veik rödd
á þeim árum, en hún hljóðnaði þó ekki,
og oft urðum við þess varir, að hún
átti sér hljómgrunn og ýmsir mátu vilj-
ann fyrir verkið.
Nú hefur sem betur fer farsœllegar
skipazt í þessum efnum, olnbogarúm
verið rýmkað fyrir framtaksmenn og
verzlun öll felld í frjálsari farvegi. Enda.
þótt við ýmsa aðra örðugleika sé að
stríða fyrir atvinnurekendur, fer svo og
jafnan, að árœði stefnir til arðs. Engu
að síður er það okkar skoðun, að „Frjáls
verzlun" hafi enn sínu hlutverki að
gegna, að standa vörð um athafnafrels-
ið. Auk þess sem nauðsynlegt er, að
haldið sé úti í landinu sœmilegu riti,
sem fjallar um atvinnuvegi þjóðarinnar
og efnahagsmál.
Okkur er því mikið ánœgjuefni, að
ungir menn vilja taka upp merkið og
halda vöku þjóðarinnar á þessum vett-
vangi. Óskum við þeim fararheillar og
„Frjálsri verzlun" góðs gengis.
Birgir Kjaran. Gunnar Magnússon.