Frjáls verslun - 01.08.1967, Qupperneq 5
FRJÁLB VERZLUN
5
FRJAI-S
VIERZI.LJISI
ÁGÚST
1967
2Í. ÁRGANGUR
1. TÖLUBLAÐ
MánaSarlegt tímarit um viSskipta- og
efnahagsmál — stofnaS 1939.
★
GefiS út í samvinnu viS samtök verzl-
unar- og athafnamanna.
Útgáfu annast:
Verzlunarútgáfan hf.
Skrifstofa ÓSinsgötu 4.
Simar: 82300 - 82301 - 82302.
Pósthólf 1193.
Ritstjóri og framkv.stj.:
Jóhann Briem.
Fréttastjóri:
Ólafur Thóroddsen (ábm.)
Auglýsingastjóri:
GuSmundur Lárusson.
Útgáfustjóri:
Bjarni Sigtryggsson.
Setning og prentun:
FélagsprentsmiSjan.
★
VerS í áskrift kr. 65,00 á mánuSi.
Kr. 80,00 í lausasölu.
Sölustaoir:
Bókaverzlun Lárusar Blöndal,
Vesturveri,
SkólavörSustíg.
Bókaverzlun
Sigfúsar Eymundssonar,
Austurstrœti.
★
Öll réttindi áskilin. Endurprentun aS
hluta eSa öllu leyti óheimil, nema,
til komi sérstakt leyfi útgefanda.
Bréf frá útgefanda
Ef við blöðum gegn um árganga Frjálsrar verzlunar —
ogflettum síðan þessu tölublaði, má strax sjá, hversu geysileg
breyting verður nú á fomii blaðsins, jafnt að útliti sem
efni.
Við getum ekki neitað því, að þegar ákveðið var að breyta
formi blaðsins, vöktu rikt fyrir okkur hugmvndir um að
færa það að nokkru í svipað form og vinsælla, erlendra
tímarita, sem gefin eru út á svipuðum grundvelli. Ekki voru
þær breytingar hugsaðar hreytinganna vegna. heldur liins,
að það form, sem hugsað er að stefna að, er aðgengilegt,
fræðandi og hlutlaust, þjónar ýmsum og ólíkum lesenda-
hópum og er að ryðja sér til rúms um gjörvallan heim.
Hlutverk blaða og tímarita er í sífellu að færast meira í
það horf að flytja lesendum fróðléik og fréttaefni á hlut-
lausan og sannan hátt — flytja staðreyndir fremur en skoð-
anir. Þetta er þróun tímans, og þar eiga hraðvirkari fjöl-
miðlunartæki, svo sem útvarp og sjónvarp, mikinn þátt í.
Efnisskiptingu F.V. er mjög þannig háttað, að blaðið höfði
ekki einvörðungu til þeirra manna, er eiga atvinnu sína og
afkomu beint til verzlunar og viðsklipta að sækja, -— heldur
er þess vænzt, að hverjum ábyrgum borgara, er fylgist með
efnahagsmálum og þjóðarhag, sé blaðið bæði gagn og
nauðsyn.
Forsíðan er að þessu sinni tengd stærstu grein blaðsins.
Ólafur Ó. Johnson er ekki einungis forstjóri einnar elztu
heildverzlunar hérlendis, heldur er hann og með yngri
mönnum í ábyrgðarstöðum. Ólafur stjórnar gamalgrónu
fyrirtæki með nútímabrag, og fróðlegt er að kynnast við-
horfum hans og starfsháttum.
Nú eru um það bil tveir mánuðir síðan undirbúríingur að
útgáfu Frjálsrar verzlunar í þessari mynd hófst af fullum
krafti, og ekki verður sagt að sá tími hafi verið ríflegur. Það
tekur nokkum tíma fyrír ritið að mótast að fullu, — og þó
verður það aldrei fullmótað í þess orðs fyllstu merkingu.
Við voniun að stöðugt megi það aðlaga sig kröfum tímans
og staðni ekki. Eitt tölublað er aldrei takmark — aðeins
áfangi. En þeim mun betur sem hver áfangi er unninn, því
nær erum við takmarkinu.