Frjáls verslun - 01.08.1967, Page 18
1 B
FRÍJÁLS VERZLU N
Orð í tíma töluð/
HNUPL: viðkvæmt vandamál
BlöSin ským öðru hverju frá hnupli í verzlunum. Þetta
gerist ekki oft, en þegar slíkt kemur fyrir, láta margir í veðri vaka,
að þetta sé nú svo sem ekki einsdæmi, — enda er það alkunnugt,
að hnupltilfellin eru mun fleiri en fram kemur í blöðum. — Og svo
ganga sögurnar, aukast og aukast. Og ekki minnkar málgleðin,
þegar einhver, sem þjólfkenndur hefur verið í verzlunum, kemur
fram á ritvöllin og segir sínar farir ekki sléttar. Hefur hins mesta
ofsa gætt í slíkum málum, verzlunin verið rægð og ýmislegt ófag-
urt gerzt. Er því ekki að undra, 'þótt verzlunarstjórar vilji lílið
aðhafst, þó að manneskja sé staðin að stuldi. Falla þessi mál þess
vegna oftast nær niður. Lögregluskýrslur eru þannig enginn mæli-
kvarði á hnupl.
En það er ekki einungis, að menn tali um lmupl í verzl-
unum, því að ýmsir kaupsýslumenn o. fl. halda því fram, að miklu
sé hnuplað um borð í skipum, í vörugeymslum, við uppskipun og
víðar. Er ýmislegt, sem styður þá skoðun, að nokkurt hnupl eigi
sér stað, en slikt er þó hverfandi lítið miðað við skemmdir og
eðlilega rýrnun. Er óorðið, sem komizt hefur á verkamenn, nokkuð
ýkt, en þeir geta sjálfum sér um kennt. Þannig hefur það vist
komið fyrir, að verkamenn liafa verið staðnir að stuldi, en málinu
lauk allt að einu þannig, að sá, sem kærði, varð að hiðja þjófana
fyrirgefningar á kærunni. Hvað segja menn nú um annað eins?
VerkalýSsfélögin eru þó öll af vilja gerð til þess að girða
fyrir hnupl, en leiðindamál eins og það, sem að framan var nefnt,
varpa skugga á þessa ágætu viðleitni. — Er ákaflega erfitt að
rannsaka hnupl- og þjófnaðarmál við höfnina, þar eð enginn
virðist vilja segja eða þora að segja neitt.
★
Frjáls verzlun hefur nú látið athuga hnuplið og vill skýra
lesendum sínum frá niðurstöðum könnunarinnar.
ER HNUPLIÐ VERULEGT?
Við rannsókn hnuplsins var
fyrst leitað til opinberra skýrslna.
Kom í Ijós, að af þeim 250 þjófn-
aðarmálum, sem saksóknaraem-
bættið fjallaði um á árinu 1966,
lauk 37 málum með ákærufresti.
Sundurliðun á eðli málanna er
ekki fyrir hendi, en ætla má, að
meginhluti þessara 37 mála sé
hnupl- og smáþjófnaðarmál í
verzlunum. Sést af þessu, að þau
eru ekki mörg málin af þessu tagi,
sem berast embættinu. Einnig eru
kærur til lögreglunnar vegna
þvílíkra mála sárafáar.
Þetta segir þó einungis hálfa
söguna. Niðurstöður könnunar-
innar urðu allt aðrar, þegar spurzt
var fyrir í verzlunum. — Verður
fyrst að geta þess, að fæst hnupl-
tilfellin, sem komast upp, eru kærð,
og ef þau eru á annað borð kærði
þá er oftast fallið frá kærunni. Er
það mikiðvegna þess, að hinuopin-
bera ber ekki skylda til ákæru í
þjófnaðarmálum, þar sem verð-
mæti þýfis er undir 3000 kr., —
nema í sérstökum tilfellum: endur-
tekningu brots o. fl. Eru flest
tilfellin, sem fyrir koma í verzlun-
um, það lítilfjörleg, að hinu opin-
bera ber ekki skylda til að kæra
yfir þeim, og falla þau þar af
leiðandi niður, þar eð fáir nenna
að halda kæru í smámáli til
streitu.
Það er þess vegna víst, að
meiri brögð eru að hnupli og smá-
þjófnaði í verzlunum en komið
hefur fram í opinberum skýrslum.
í sumum greinum verzlunar er
hnupl og smáþjófnaður töluvert
vandamál.
HVAR, HVERJU OG HVE
MIKLU ER HNUPLAÐ?
Kjörverzlanir. Mest ber á hnupli
í sjálfsafgreiðsluverzlunum, er
selja mat- og nýlenduvörur. Þó er
nokkur munur á verzlunum. Þann-
ig verða verzlanir í miðbænum
harðast úti. Þar næst koma stór-
verzlanir í úthverfum, þar sem
viðskiptavinirnir þekkja hvorki
hver annan né heldur afgreiðslu-
fólkið. — Hins vegar sleppa minni
verzlanir betur. Bæði er auð-
veldara að fylgjast með öllu í
verzluninni og svo er hitt, að við-
skiptavinir eru ekki fleiri en svo,
að flestir eru kunnugir þar.
Það yrði þess vegna fljótlega
heyrum kunnugt í hverfinu, ef ein-
hver íbúi þess yrði staðinn að
hnupli í verzluninni. Því er það,
að hvinnskt fólk leitar frekar á
verzlanir í miðbænum eða á stór-
verzlanir í öðrum hverfum, því að
enginn vill liggja undir þjófsorði
af nágrönnum, vinum eða kunn-
ingjum.
Magn þess, sem hnuplað er í
kjörverzlunum, ernokkuð mismun-
andi. Þar, sem mest ber á hnupli
og óeðlilegri rýrnun, er álitið, að
slíkt fari nokkuð yfir 1%. Þetta er
mjög mikið, og hljóta orsakirnar
að vera aðrar en beint hnupl. Hins
vegar eru margir stjórnendur kjör-
verzlana sammála um, að hnupi
og óeðlileg rýrnun kunni að vera
einhversstaðar á milli 0.5% og