Frjáls verslun - 01.08.1967, Qupperneq 33
FRJÁLS VERZLIJN
33
LlFE YRISS J ÓÐUR
í lífeyrissjóði verzlunarmanna
eru um 2000 manns á skrá, og er
höfuðstóll sjóðsins um 150 millj.
krónur, en sjóðurinn var stofn-
aður í febrúar 1956. Sjóðurinn
hefur verið mörgum verzlunar-
manninum mikilvæg stoð við að
eignast þak yfir höfuðið, þar sem
hann veitir fasteignalán. Á s.l.
ári voru veitt lán til sjóðsfélaga
að upphæð 44.4 millj. króna. Efl-
ist sjóðurinn ár frá ári, og er
ekki nokkur vafi á, að hann hef-
ur einnig haft — og mun hafa —
mikilvæga þýðingu fyrir Verzl-
unarbanka íslands h/f, þar sem
hann er ávaxtaður.
Núverandi formaður V.R. er
Guðmundur H. Garðarsson, við-
skiptafræðingur, en skrifstofu-
stjóri Magnús L. Sveinsson. Fé-
lagið er til húsa að Austurstræti
17, og starfa þar, ásamt Magnúsi,
þau Helgi E. Guðbrandsson og
1 Iólmfríður Árnadóttir.
50 ÁRA AFMÆLI V. í.
Eins og skýrt hefur verið frá,
fara hátíðarhöld í tilefni 50 ára
afmælis Verzlunarráðsins fram
laugardaginn 16. og sunnudaginn
17. september. í hófi, sem haldið
verður að kvöldi hins 16. septem-
ber, mun Forseti íslands heiðra
Verzlunarráðið með nærveru
sinni. Það er ósk stjórnar Verzl-
unarráðsins, að sem flestir af að-
iljum þess sjái sér fært að
vera við hátíðarhöldin þetta
kvöld.
f tilefni af afmælinu verður
gefið út sérstakt hátíðarblað.
Verður vandað til þess bæði að
efni og útliti, og ætti blaðið að
verða hin ágætasta heimild um
verzlunarmál.
Núverandi formaður Verzlun-
arráðs er Kristján G. Gíslason,
ræðismaður, en svo skemmtilega
vill til, að faðir hans, Garðar
Gíslason, stórkaupmaður, var
fyrsti formaður ráðsins.
VERÐLAGSMÁL.
f marz s. 1. var skipuð nefnd til
þess að semja drög að nýrri lög-
Frá Félagi
isl. Iðnrekenda
F AT AIÐN AÐURINN.
Erfiðleikar. Svo sem kunnugt er
hefur fataiðnaðurinn átt í miklum
erfiðleikum að undanförnu. Hafa
fataframleiðendur talið sinn hlut
stórlega skertan vegna aukins inn-
flutnings og vaxandi ferðalaga til
útlanda, sem að sjálfsögðu draga
úr fatakaupum hér heima.
Vitaskuld eru engar tölur til um
þessi fatakaup, en innflutningur
fatnaðar á undanförnum árum hef-
ur verið þessi, cif-verð:
gjöf um eftirlit með einokun,
hringamyndun og verðlagi.
f nefndinni, sem skipuð er 21
manni, eiga sæti fulltrúar sam-
taka launþega, neytenda og at-
vinnurekenda, þ. á m. formaður
Verzlunarráðsins og fulltrúar að-
ildarfélaga þess. Enn fremur eru
í nefndinni fulltrúar þingflokk-
anna og nokkrir embættismenn,
þ. á m. ráðuneytisstjóri viðskipta-
málaráðuneytisins, sem er for-
maður nefndarinnar.
Skipuð var undirnefnd og á
Þorvarður J. Júlíusson, fram-
kvæmdastjóri Verzlunarráðs ís-
lands, sæti í henni.
ÖFLUN UPPLÝSINGA UM
ERLEND FYRIRTÆK3.
Upplýsingaskrifstofa Verzlun-
arráðsins hefur jafnan leitazt við
að hafa fyrirliggjandi sem ná-
kvæmastar upplýsingar um stöðu
og starfsemi innlendra fyrirtækja
til notkunar fyrir erlendar stofn-
anir, sem þeirra óska. Hins vegar
hefur hingað til verið lögð minni
áherzla á að afla íslenzkum að-
iljum upplýsinga um erlend fyr-
1961 30.1 millj. kr.
1962 68.8 — —
1963 101.0 — —
1964 139.1 — —
1965 157.2 — —
1966 205.9 — —
Þessi innflutningur hefur vitan-
lega haft mikil áhrif á afkomu
fataiðnaðarins í landinu. Auk þess
kemur fleira til, svo sem orðróm-
ur um undirboð o. fl.
Könnun. Vegna erfiðleika fata-
iðnaðarins ákvað stjórn F.Í.I. hinn
17. maí .1967 að láta fara fram
könnun „á ástandi og horfum í
fataiðnaði“. Er könnuninni nú lok-
ið, og verður skýrsla um hana
væntanlega birt síðar í mánuðin-
um.
FERÐ Á HEIMSSYNINGUNA.
Efnt verður til hópferðar á
heimssýninguna í samvinnu við
F.Í.S. Farið verður í september
n.k. Kostar 10 daga ferð kr.
13.400,00. Eru þá innifaldar ferðir,
hóteluppihald o. fl.
Formaður F.Í.I., Gunnar J. Frið-
riksson, dvelst nú í Montreal og
veitir íslenzku sýningardeildinni
forstöðu.
irtæki, sem þeir eru í viðskiptum
við. Slíkar upplýsingar geta ver-
ið nauðsynlegar til að fá hlut-
lausar upplýsingar um fjárhag og
álit viðkomandi fyrirtækis. Upp-
lýsingaskrifstofan vill því benda
á, að hún mun framvegis taka að
sér útvegun upplýsinga um er-
lend fyrirtæki. Er hún í sambandi
við fjölmargar upplýsingaskrif-
stofur í Evrópu og Ameríku, sem
taka að sér útvegun nákvæmra
upplýsinga um sögu, starfsemi og
álit fyrirtækja erlendis.
FRÁ VERZLUNARRÁDI ISLANDS