Frjáls verslun - 01.08.1967, Qupperneq 34
34
•rRJÁLS’ VERZLUNl
FRÁ KAUPMANNA-
SAMTÖKUM ÍSLANDS
STOFNLÁNASIÖÐUR.
Sigurður Magnússon, formaður
Kaupmannasamtakanna, hreyfði
þeirri hugmynd á aðalfundi Verzl-
unarbanka íslands h/f árið 1962,
að nauðsynlegt væri, að stofnaður
yrði stofnlánasjóður verzlunar-
innar. Benti Sigurður á það, að
verzlunin stæði að baki öðrum
atvinnuvegum, hvað snerti stofn-
lánasjóði. Gerði Sigurður það að
tillögu sinni, að kannaðir yrðu
möguleikarnir á því að koma á
fót stofnlánasjóði við Verzlunar-
banka íslands h/f.
Alþingi hefur nú afgreitt lög
um stofnlánasjóð við Verzlunar-
banka fslands.
STOFNLÁNASJÓÐUR
MATVÖRUVERZLANA.
Síðan gerðist það, að matvöru-
kaupmenn stofnuðu sinn eiginr
stofnlánasjóð á s. 1. ári. Þarf ekki
að efa, að þetta verður matvöru-
kaupmönnum til mikilla heilla.
Sjóðurinn er séreignasjóður.
Höfuðstóllinn er framlög sjóðsfé-
laga. Félagsmenn fá þau endur-
greidd með fullum vöxtum, ef
þeir segja sig úr sjóðnum, við
andlát eða gjaldþrot.
SÝNDSIG.
Kvenfélagasamband fslands
heldur landsfund sinn í Reykja-
vík 24.—25. ágúst n. k. í tilefni
þess hefur sambandið boðið Fé-
Frá Verzlunarbanka íslands
„IBM-gataspj aldskrárúrvinnsla
bókhalds veitir viðskiptavinum
bankans skjóta afgreiðslu og
bankanum hagkvæmari rekstur,
ásamt möguleikum til stækkunar
án erfiðleika,“ sagði Höskuldur
Ólafsson, bankastjóri, fyrir
skömmu, er fréttamaður F.V.
ræddi við hann um málefni bank-
ans.
Rekstur Verzlunarbanka ís-
lands hefur gengið mjög vel frá
upphafi, og veitir bankinn nú sér-
lega góða þjónustu, hvað af-
greiðslu snertir. Stjórnendum
bankans hefur ávallt verið ljós
hin mikla þýðing hraðrar og ör-
uggrar afgreiðslu. Kom bankinn
því á IBM-úrvinnslu bókhalds,
sem hefur þá kosti umfram hið
eldra fyrirkomulag, að afgreiðsla
fer nú einungis fram við gjald-
kerann í afgreiðslunni, en bókun-
in á fjórðu hæð hússins. Sparar
þetta viðskiptavinum tíma, en í
dagsins önn er tíminn þeim, er
viðskipti stunda, dýrmætastur.
Verzlunarbankinn er eini bank-
inn, sem notar gataspjaldakerfi
við úrvinnslu viðskiptareikninga.
Aukin starfsemi. Frá því að
bankinn var stofnaður árið 1961,.
hefur starfsemi hans sífellt aukizt
ár frá ári. Aðalbankinn er nú í
Bankastræti 5, en það hús keypti
bankinn árið 1964. Útibú eru að
Laugavegi 172 og í Keflavík, en
afgreiðsla er í Umferðarmiðstöð-
inni. Hefur bankinn samfellt
opna afgreiðslu daglega kl. 9.30
til 19.
Skipulag — starfsfólk. Skipu-
lagi bankans er þannig farið, að
aðalfundur kýs þriggja manna
bankaráð, sem fer með stjórn
bankans, ásamt bankastjóra og
aðstoðarbankastjóra. Bankaráð
skipa nú þeir Egill Guttormsson,
formaður, Þorvaldur Guðmunds-
son og Magnús J. Brynjólfsson.
Bankastjóri er Höskuldur Ólafs-
son, en aðstoðarbankastjóri Krist-
ján Oddsson.
Við bankann starfa nú 68
manns, og er þá meðtalið það
fólk, sem ekki starfar beinlínis
við bankastörf, svo sem nætur-
verðir o. fl.
Skrifstofustjóri bankans er
Árni H. Bjarnason, aðalbókari
Lárus Lárusson, aðalféhirðir
Björgúlfur Bachmann.
Úr afgreiðslusal.
lagi raftækjasala að efna til sýn-
ingar á þvottavélum og sauma-
vélum og yrði sýningin haldin í
hinum nýju og glæsilegu húsa-
kynnum Kvenfélagasamtakanna,
Hallveigarstöðum, Túngötu 14.
Stjórn Félags raftækjasala hef-
ur ákveðið að taka boði þessu.
Hefur stjórnin jafnframt ákveðið,
að sýningin verði opin fyrir al-
menning í 3—4 daga, eftir að
landsfundinum lýkur, enda gefst
hér óvenjugott tækifæri fyrir al-
menning til að sjá og kynnast
þeim gerðum framangreindra
véla, sem á markaðinum eru.
*