Frjáls verslun - 01.08.1967, Side 46
46
FRJÁLS VERZLUN-
HANN
FYLGIST
MEÐ
í daglegu starfi er hann
háður þróun tímans —
þeim öru breytingum, sem
g e r a s t kringum hann.
Hann les Frjálsa Verzlun
— því hann er maðurinn,
sem fylgist með.
FRJALS
VIERZI.UIM
um algert afnám tolla, sem voru
5% eða lægri. Lög þessi vorusam-
þykkt 1. júlí 1962 og skyldu
gilda í 5 ár. Þess vegna var
nauðsynlegt, að Kennedy-viðræð-
unum væri lokið, áður en þessi
lög rynnu út, og það tókst með
undirritun samninganna um tolla-
lækkanirnar 30. júní s.l. Þegar
Bandaríkjaþing hafði samþykkt
hin svonefndu „Trade Expans-
ion“-lög 1962, hafði skapazt grund-
völlur víðtækra tollaviðræðna
milli Vestur-Evrópu og Banda-
ríkjanna. Var talið eðlilegt og
sjálfsagt, að slíkar tollaviðræður
færu fram á vegum GATT. í maí
1963 var ákveðið á ráðherra-
fundi í GATT, að slíkar tollavið-
ræður skyldu hefjast 1964. Var
ákveðið, að viðræðurnar skyldu
taka til allra vörutegunda og
fjalla bæði um tollamál og við-
skiptatálmanir. Viðræðurnar hóf-
ust formlega í maí 1964, og var
þá ákveðið að stefna að því að
lækka tolla um 50%. Ákveðið
var, að meginreglan í viðræðun-
um skyldi vera sú, að tollalækk-
unin skyldi vera jöfn á öllum
vörutegundum. þ.e. „linear.“ En
þó var samþykkt, að nokkur
lönd með sérstakar efnahags-
ástæður skyldu undanþegin þessu
ákvæði. Viðræðurnar fóru þannig
fram, að í fyrstu lögðu þátt-
tökuríkin fram lista yfir þær
vörur, sem þau vildu að yrðu
undanþegnar tollalækkunum. —
Fóru fram miklar viðræður um
réttlætingu þessara undanþágu-
lista. Síðan var rætt, hversu
mikil tollalækkunin ætti að
vera á þeim vörutegundum,
sem hún næði til. Það kom
fljótlega í ljós, að góðar horf-
ur voru á talsverðri íolla-
lækkun á iðnaðarvörum, en lítil
von til þess, að mikill árangur
næðist á landbúnaðarsviðinu. —
Ástæðan fyrir þessu var sú, að
Efnahagsbandalagið hafði ekki
fullmótað stefnu sína í landbún-
aðarmálum, og fyrirsjáanlegt var,
að bandalagið hafði lítinn áhuga
á því að hleypa bandarískum
landbúnaðarvörum óhindrað inn
á markaðssvæði sitt. Fór tíminn
lengi vel eingöngu í að ræða
tollalækkanir á iðnaðarvörum,
en öllum viðræðum um tolla-
lækkanir á landbúnaðarvörum
var frestað, á meðan stefna Efna-
hagsbandalagsins í þeim málum
hafði ekki verið ákveðin. Það
gerði samningana um landbúnað-
armálin erfiðari, að vandkvæði
viðskipta með landbúnaðarafurðir
er ekki fyrst og fremst vegna
tolla, heldur vegna hafta, sem eru
á slíkum viðskiptum.
Á lokastigi Kennedy-viðræðn-
anna virtist svo sem samningarn-
ir ætluðu að fara út um þúfur.
Ákveðið hafði verið að reyna að
ljúka samningunum hinn 30.
apríl s.l., en er ekki hafði náðst
samkomulag þá, var ákveðið að
framlengja samningana enn um
hálfan mánuð. Stóðu fundir nótt
og dag síðustu dagana, áður en
sá frestur rann út. Mánudaginn
15. maí um miðnætti, tókst sam-
komulag í stórum dráttum milli
aðalsamningsaðiljanna. Þau atriði,
sem mestum deilum ollu á loka-
stigi viðræðnanna, voru reglur
Efnahagsbandalagsins um „kem-
ískar vörur, lækkun stáltolls
Breta, hámarks- og lágmarksverð
á hveiti og korngjafir til þióun-
arlandanna. Það, sem mestu máli
skiptir, í samningunum um land-
búnaðarmálin, var eftirfarandi:
Samið var um nýtt lágmarksverð
á hveiti. Er það verð 1.73 bandar.
dalir pr. skeppu fyrir „hard
winter“ gæðaflokkinn. En það er
0,19 bandar. dölum hærra en lág-
marksverð Alþjóðahveitiráðsins,
miðað við núverandi farmgjöld.
Þá var samið um 4,5 millj. tonna
sameiginlega korngjöf til þróunar-
landanna. Bera Bandaríkin 42%
kostnaðarins og Efnahagsbanda-
lagið 23%. Alls hafa verið gefin
loforð fyrir 94-95% kostnaðarins.
Þar af ber t.d. Svíþjóð 1,2%,
Danmörk 0,6% og Noregur og
Finnland 0,3% hvert.
ísland var ekki aðili að GATT,
er ákveðið var að hefja Kennedy-
viðræðurnar. Ákvað ísland að
gerast aðili að GATT til þess að
geta tekið þátt í viðræðunum.
Fékk ísland bráðabirgðaaðild að
GATT í marz 1964 og öðlaðist
þar með heimild til þess að taka
þátt í Kennedy-viðræðunum, sem
hófust þá um vorið. Vildu fulltrú-
ar fslands stuðla að því, að sem
mestur árangur næðist á sviði við-
skipta með sjávarafurðir. í fyrstu
töldu fulltrúar Islands ekki koma
til mála að leggja fram tilboð í
Kennedy-viðræðunum á „linear“-
grundvelli. — Töldu þeir rétt-
lætanlegt með tilliti til sérstöðu