Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1967, Blaðsíða 55

Frjáls verslun - 01.08.1967, Blaðsíða 55
55 Lög og réttur/ Hjörtur Torfason, hrl.: Endurskoðun hlutaféiaga- laganna frá 1921 TILKOMA HLUTAFÉLAGA. Senn eru nú liðin 100 ár, síðan starfsemi reglulegra hlutafélaga varð varanlegur þáttur í íslenzku atvinnulífi. Sagt hefur verið um þetta félagsform, að tilorðning þess á ofanverðum miðöldum og síðari framþróun þess á 17. og 18. öld hafi ekki verið ómerkari áfangi á þroskabraut mannkynsins en uppfinning gufuvélarinnar og annarra þeirra tækninýjunga, sem hrundu af stað iðnbyltingunni á sínum tíma og lögðu grundvöllinn að tæknibvltingu nútímans. Hvort sem þetta er ofmælt eða ekki, er hitt víst, að þáttur hlutafélaganna í viðskiptalífi þjóðanna hefur orðið æ mikilvægari eftir því sem tímar liðu, jafnt hér á landi sem annars staðar. Er ástæða til að ætla, að hann muni fara vaxandi enn um sinn. LÖG NR. 77 FRÁ 27. JÚNl 1921. Á þessu tæpra 100 ára tímabili höfum við íslendingar eignazt ein heildarlög um stofnun og starf- semi þessara félaga. Eru það lögin um hlutafélög nr. 77 frá 27. júní 1921, sem nú hafa gilt með óveru- legum breytingum um nærri hálfr- ar aldar skeið. Setning þessara laga leysti úr brýnni þörf á sínum tíma, og ferill þeirra síðan hefur orðið áfallalítill. Það hefur hins vegar lengi verið Ijóst, að lögin mundu þurfa úrbóta við í ýmsum efnum, og mun óhætt að fullyrða, að tími sé til kominn að taka þau til endurskoðunar miðað við fengna reynslu og þær breyting- ar, sem orðið hafa í efnahagsmál- um þjóðarinnar. Yfirleitt hefur raunin orðið sú í nágrannalöndum okkar, að nauðsynlegt sé að hafa jafnan vakandi auga með löggjöf- inni um hlutafélög til að tryggja skiptalífsins á hverjum tíma. það, að hún fullnægi þörfum við- ERLEND FYRIRMYND. Hlutafélagalögin frá 1921 eru í aðalatriðum sniðin eftir þá- gildandi hlutafélagalögum Dana, sem voru hin fyrstu þar í landi og sett árið 1917. Þessi dönsku lög þóttu á ýmsan hátt ófullkom- in frá sjónarmiði þeirra, er búa vilja sem tryggilegast að starfs- háttum hlutafélaga, og settu Danir sér ný hlutafélagalög árið 1930. Á þeim áratugum, sem síðan eru liðnir, hefur endurskoðun og sam- ræming hlutafélagalaga á Norður- löndum verið á dagskrá samnor- rænnar nefndar, sem unnið hefur að undirbúningi sameiginlegs frumvarps til hlutafélagalaga. Hefur ísland átt aðild að störfum nefndarinnar síðustu árin. Ýmis íslenzk lög eiga rót sína að rekja til slíkrar samvinnu, sem kunn- ugt er, svo sem samningalögin frá 1936 og lögin um vátryggingar- samninga frá 1954. Á sviði hluta- félagalaga hefur hin norræna sam- vinna enn ekki borið beinan árangur, og er ekki vitað að svo stöddu, hve langt þess verður að bíða, að nefndin ljúki störfum. Óvíst er einnig, hvort niðurstöður nefndarinnar muni að öllu leyti henta íslenzkum staðháttum, en vonir standa til þess, að störf henn- ar geti orðið að verulegu liði við mótun hlutafélagalöggjafar hér á landi. ENDURSKOÐUN. Hér heima fyrir var málum þessum fyrst hreyft að marki á árinu 1948, er Alþingi ályktaöi að skora á ríkisstjórnina að láta fara fram endurskoðun á hlutafélaga- lögunum frá 1921. Voru þeir Árni Tryggvason og dr. Þórður Eyjólfs- son, þá hæstaréttardómarar, skip- aðir til að framkvæma þetta verk, og sömdu þeir frumvarp til nýrra hlutafélagalaga. Var þar tekið tiilit til hlutafélagalöggjafar með ýms- um þjóðum, en þó einkum höfð hliðsjón af ákvæðum sænsku hlutafélagalaganna frá 1944, sem enn eru í gildi með nokkrum breytingum, og frumvarps dönsku hlutafélagalaganefndarinnar frá árinu 1941, sem ekki hefur orðið að lögum. Frumvarp þetta var lagt fyrir Alþingi árið 1952 og aftur árið 1953, en hlaut ekki afgreiðslu. Frekara var ekki aðhafzt í málinu um sinn, en þess beðið, hverju fram yndi um störf hinnar sam- norrænu nefndar. Þar sem enn ríkir óvissa um hinar endanlegu niðurstöður nefndarinnar sem fyrr getur, þótti ekki ástæða til að draga málið frekar á langinn, og á s.l. vetri fól dómsmálaráðherra, Jóhann Hafstein, höfundi þessa greinarkorns að hefja störf að endurskoðun hlutafélagalaganna. Er það von mín, að unnt verði að þoka málinu nokkuð áleiðis á næstu mánuðum. Til þess er ætl- azt, að við þessa endurskoðun verði frumvarpið frá 1952 haft til athugunar, ásamt þeim bending- um og athugasemdum, sem gerð- ar voru við frumvarpið af ýmsum aðilum, meðan það lá fyrir Al- þingi. Á sama hátt verði höfð hlið- sjón af niðurstöðum og gögnum frá hinni samnorrænu nefnd, eftir því sem þau liggja fyrir. Jafn- framt er þess óskað, að athugað verði, hverjar breytingar á ann- arri almennri félagalöggjöf, svo sem um samvinnufélög, sameign- arfélög og samlög, mundu eiga að fylgja gagngerri endurskoðun á hlutafélagalöggjöfinni. Þess er að vænta, að samráð verði höfð við samtök þau og aðila, sem hags- muna hafa að gæta í málinu, áð- ur en gerðar eru formlegar til- lögur um nýja löggjöf.og þá að sjálfsögðu einnig við samtök verzlunarmanna. HLUTVERK LAGANNA. Hlutafélög hafa margvíslegu hlutverki að gegna í nútíma þjóð- félagi, og reynsla okkar sem ann- arra hefur orðið sú, að það sé bæði erfitt verk og tímafrekt að meta, hvernig heppilegast sé að búa að þeim með lagasetningu. Hlutafélagalög hinna ýmsu þjóða eru mjög mismunandi í mörgum greinum. Óhætt mun þó að full- yrða, að stöðugt horfi þar til auk- innar samræmingar með bættum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.