Frjáls verslun - 01.09.1967, Qupperneq 5
5
FRJÁLS VERZLUN
bréf
frá
útgefanda
Ljúft er og skylt í upphafi þessara orða að þakka þær góðu
móttökur, sem Frjáls vei’zlun hefur hlotið, og einnig og
ekki síður ýmsar gagnlegar ráðleggingar. Frjáls verzlun er
enn mjög í mótun, og eru allar ábendingar lesenda vel þegn-
ar.
Blaðið er nú nokkuð hreytt frá 1. tbl. Uppselningin hefur
verið einfölduð, en þó er vart við því að búast, að útlit blaðs-
ins sé endanlega ákveðið.
Nýr þáttur, „Hagfréttir F.V.“, hefst nú í blaðinu, og mun
hann birtast að staðaldri. 1 þessum þætti er að finna ýmsar
gagnlegar upplýsingar í samanþjöppuðu formi. Hins vegar
mun þátturinn „Staða—hagur—horfur“ aðeins birtast öðru
hverju. I þeim þætti var í síðasta blaði fjallað um „Verðfall
á útflutningsvörum“, og vakti sú grein mikla athygli.
Margt er viðtala í blaðinu. Er ekki að efa, að ýmislegt má
læra af orðum þeirra ágætu manna, er ræða nú við F.V.
•— Líkast til verður viðtalið við Magnús Jónsson fjár-
málaráðherra lesið með hvað mestri athygli, enda em efna-
hagsmálin efst á baugi um þessar mundir.
Kristján G. Gislason ræðismaður, formaður Verzlunarráðs
Islands, er samtíðannaður F.V. í þessum mánuði. Það þarf
víst ekki að geta þess, að Verzlunarráð Islands átti fimmtiu
ára afmæli hinn 17. septemlier s.l. Þótti fara vel á því að
rita um og ræða við formann Verzlunarráðs Islands í tilefni
þessara tímamóta.
1 blaðinu eru eimiig birtar myndir frá afmæh Verzlunar-
ráðs. Ákvað ritstjómin að liafa myndirnar með í þessu blaði,
enda þótt vitað væri, að slikt mundi seinka útgáfu blaðsins
nokkuð. Biðjum við lesendur að afsaka töfina.
Ýmsar greinar eru í blaðinu, og er rcynt að koma sem víð-
ast við, því að reynslan bendir óumdeilanlega til þess, að
lesendur vilji fjölskrúðugt efni. Viðamesta greinin er að
þessu sinni eftir Björgvin Guðmundsson deildarstjóra, en
hann ritar um markaðsbandalögin í Evrópu. Er Björgvin
löngu viðurkenndur sérfræðingur í þessum málum, og verða
vafalaust margir stórum fróðari um þessi efni eftir lestur
greinar hans.
Eins og tekið var fram í upphafi þessara orða, er F.V. blað,
sem er enn mjög i mótun. Við fikrum okkur áfram með
hverju blaði, og með góðum ábendingum og stuðningi ykk-
ar, lesendur góðh', náum við vonandi brátt þeirri braut, er
haldið skal eftir.
I=RJAI.H
VIERZLUIM
SEPTEMBER
1967
27. ÁRGANGUR
2. TBL.
MÁNAÐARLEGT TÍMARIT
U M VIÐSKIPTA- □ G
EFNAHAGBMAL - STDFNAÐ 1939.
GEFIÐ ÚT í SAMVINNU VIÐ SAMTÖK
VERZLUNAR- DG
ATHAFNAMANNA.
ÚTGÁFU ANNAST:
VERZLUNARÚTGÁFAN H.F.
SKRIFSTDFA DÐINSGDTU 4.
SÍMAR: B23GG - B23D1 -B23D2.
PÓSTHOLF 1193.
RITSTJDRI □ G FRAMKV.STJ.:
JÓHANN BRIEM.
FRETTASTJQ Rl:
□ LAFUR THDRDDDSEN [ÁBM.].
AUGLÝSINGASTJÓRI:
ÁSDÍS ÞQ RÐARDQTTIR.
SETNING □ G PRENTUN:
FELAGSPRENTSMIÐJAN H.F.
VERÐ í ÁSKRIFT KR. 65,□□
Á MÁNUÐI.
KR. BD.DD í LAUSASÖLU.
ÖLL RETTINDI ÁSKILIN.
ENDURPRENTUN AÐ HLUTA EÐA
ÖLLU LEYTI ÓHEIMIL, NEMA
TIL KDMI SÉRSTAKT LEYFI
ÚTGEFANDA.