Frjáls verslun - 01.01.1968, Qupperneq 23
FRJÁLS VERZLÍLJN
23
„AðalatriSiS er, aS
verzlunarstéttin
hvorki getur né md
einangra sig írá
þ j óðarheildinni".
„ESa hverjum dettur í
hug aS stórfellt des-
emberverkfall hefSi
ekki orSiS verzlunar-
stéttinni enn þyngra í
skauti en þau verS-
lagshöft, sem hún meS
eSlilegum hœtti unir
illa, en eru forsenda
þess, aS ekki verSi
lögS á til frambúSar
bœSi verSlagshöft og
innflutningshöft".
stefna bæjar- og sveitarfélaga, þá
einkum Reykjavíkur, hafi á und-
anförnum árum verið í samræmi
við heildarstefnu ríkisstjórnarinn-
ar í efnahags- og atvinnumálum.
Forsætisráðherra: Ríkisstjórnin
hefur stöðugt hvatt til varúðar í
fjárfestingum jafnt sveitarfélaga
sem ríkisins á undanförnum út-
þensluárum.
Frjáls verzlun: Teljið þér, nú
þegar vitað er um nýjustu efna-
hagsmálaráðstafanir Bandaríkja-
stjórnar, að þær muni hafa áhrif
á efnahagslega framvindu hér-
lendis, og ef svo er þá hvernig og
að hvaða leyti?
Forsætisráðherra: Slík áhrif eru
ekki sjáanleg enn.
Frjáls verzlun: Að lokum lang-
ar okkur til að heyra álit yðar á
þeirri skoðun margra að margum-
talaður vinnufriður í landinu á
undanförnum árum hafi verið
keyptur of dýru verði, eða með
kjarabótum, sem hafi reynt til
hins ýtrasta á greiðslugetu at-
vinnuveganna.
Forsætisráðlierra: Ég er sann-
færður um, að kaupgjald, vöru-
verð og verðbólga hefðu vaxið
stórum meira á undanförnum ár-
um, ef ekki hefði tekizt að halda
sæmilegum vinnufriði. Úr þessu
sker samanburður á reynslu ár-
anna 1964—1967 og áranna á und-
an, ótvírætt. Greiðslugeta atvinnu-
veganna væri því mun minni þeg-
ar vegna enn hærra verðlags að
viðbættu margháttuðu verkfalls-
tjóni. Eða hverjum dettur í alvöru
í hug, að stórfellt desemberverk-
fall hefði ekki orðið verzlunar-
stéttinni enn þyngra í skauti en
þau verðlagshöft, sem hún með
eðlilegum hætti unir illa, en eru
forsenda þess, að ekki verði lögð
á til frambúðar bæði verðlagshöft
og innflutningshöft? Athafnamik-
ill iðnrekandi hélt því nýlega
fram, að kaupgeta almennings
hefði aldrei komizt í samt horf
eftir verkföllin miklu 1955. Þetta
eru vafalaust ýkjur, en víst er að
fátt er lagað til að skapa atvinnu-
rekstri meiri örðugleika en lang-
varandi verkföll með þeim gífur-
lega kostnaði, sem þeim fylgja
ásamt kauphækkunum, sem hér
hafa fylgt þeim og yfirleitt hafa
orðið því hærri, sem verkföllin
hafa staðið lengur.