Frjáls verslun - 01.01.1968, Blaðsíða 45
FtfJALS VERZLUN
4 5
MARKAÐIR
SH REKUR 25 FISKBARI Í LONDON
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna keypti og tók d leigu nokkra fiskbari í London
fyrir tíu árum. Síðan hefur þeim fjölgað stöðugt og heildarvelta þeirra
er áœtluð 31 milljón króna á þessu ári.
Fyrir tíu árum keypti Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna tvo fisk-
bari og tók nokkra slíka á leigu
í London í tilraunaskyni. Nú á
SH 25 slíka fiskbari í Bandarikj-
unum, sem selja „Fish and chips“,
kjúklinga o. fl. Þar vinna 70
manns, sem langflestir hafa vinnu
sína hjá þessum fiskbörum að að-
alstarfi. Sérstakur eftirlitsmaður
með fiskbörunum starfar á sölu-
skrifstofu SH í London.
Viðskiptin fara þannig fram að
viðskiptavinurinn kaupir matinn
tilbúinn og tekur hann með sér og
neytir hans utan barsins eða hann
snæðir hann á staðnum. í hin-
um stærri fiskbörum SH geta
50—70 manns verið að snæðingi
samtímis. Viðskipti þessara fisk-
bara hafa einkum þróazt í sam-
bandi við hópferðalög í áætlunar-
bifreiðum til og frá London. Fisk-
barirnir eru staðsettir í þéttbýlis-
kjörnum í úthverfum London og
eru auðkenndir með nafninu „Ice-
landic Fish-Bar“. Tala slíkra fisk-
bara skiptir þúsundum í Londcn.
Það var með kaupum á fyrirtæk-
inu Snax (Ross) Ltd. sem fisk-
börum SH fjölgaði til muna. Naut
fyrirtækið eðlilegrar fyrirgreiðslu
brezkra banka, sömuleiðis við
fjölgun þeirra síðar. Hagnaði at
sölu fiskbaranna er varið til
fjölgunar þeirra og til að greiða
niður kostnað af sölustarfi SH.
Fjármagn til rekstrar og uppbygg-
ingar þessarar starfsemi SH í
London hefur ekkert komið héðan
að heiman.
Heildarvelta fiskbaranna árið
1966 var um 25 milljónir króna
og er áætluð ca 31 millj. kr. á
þessu ári. Heildarvelta Snax(Ross )
Ltd. tvöfaldaðist á tveimur árum.
1964—’66.
Upphaflega var íslenzkur fiskur
notaður í fiskbörum Snax (Ross)
Ltd. Var talið heppilegra að selja
okkar fisk þangað en kaupa o-
dýrari fisk annars staðar til sölu á
fiskbörunum. Breytist þessar að-
stæður aftur verður íslenzkur
fiskur hafður á boðstólum í fisk-
börunum á nýjan leik, enda hef-
ur þarna skapazt ákjósanlegt sölu-
fyrirkomulag og dreifingarað-
staða í einni af stærstu borgum
veraldar. Rekstur fiskbaranna var
upphaflega liður í nýrri sókn SH
til sölu og dreifingar íslenzkra
fiskafurða á brezkum mörkuðum,
sem voru orðnir íslendingum mjög
óhagstæðir m. a. vegna landhelg-
isdeilu okkar við Breta. Var sala
á frystum fiskflökum til Bretlands
árið 1954 komin niður í 601 siná-
lest það ár en var í árslok 1945 25
þúsund smálestir og árið 1956 þcg-
ar viðskiptin eru byrjuð að auk-
ast aftur er hún 1598 smálestir og
hefur síðan verið mest árið 1965
eða 8537 smál. Næstmest var saia
SH til Bretlands árið 1961 eða
7747 tonn en þá var mikill skortur
á fiski í Bretlandi. Á sl. ári fór sal-
an niður í 3542 lestir, sem stafar
af hagstæðari markaðsþróun í öðr-
um löndum innan EFTA en af hin-
um íslenzka fiski þarf að greiða
fullan toll eða tíu prósent.
Hvers vegna ekki
að athuga verð og gæði
OLYMPIA-rafritvélanna
áður en þér takið lokaákvörðun
um ritvélakaup.
OLYMPIA-rafritvélin mælir með sér sjálf, enda fram-
leidd í verksmiðju með yfir 60 ára reynslu í smíði ritvéla.
ÓLAFUR GÍSLAS0N & C0. H.F.
Ingólfsstræti 1 A, sími 18370.