Frjáls verslun - 01.04.1968, Blaðsíða 25
FRJÁLS VERZLUN
23
FLUGFRAKT - FRAMTÍDIN -
Notkun flugvéla til l'armflutn-
inga er í sífelldum aukningi alls
staðar í heiminum. Stærri, hrað-
fleygari og hagkvæmari flugvélar
eru nú á teikniborðinu, og svo að
segja í hverjum mánuði renna
slíkar vélar út úr flugskýlum
flugvélaverksmiðjanna.
Eins og á öllum sviðum flugs-
ins, hefur þeirri hliðinni, sem að
flugfraktinni snýr, fleytt fram í
stórum stökkum síðustu árin.
Það, sem var draumur gærdags-
ins og af mörgum talið draum-
órar einir, er orðið að veruleika
dagsins í dag og jafnvel úrelt eft-
ir tæknibreytingar morgundags-
ins.
AUKINN HRAÐI A JÖRÐU
NIÐRI.
Síðustu tvö árin hefur aðal-
áherzlan verið lögð á að hraða
þeim framkvæmdaliðum flug-
flutninganna, sem verða óhjá-
kvæmilega að fara fram á jörðu
niðri, og hafa mörg stærri flug-
félaganna í heiminum lagt hundr-
uðir billjóna í byggingu nýrra
fraktmiðstöðva, þar sem aðal-
áherzlan er lögð á það, að sem
mestur hraði náist í meðhöndlan
fraktsendinga á milli flugvéla og
til og frá flutningsaðila.
A þessu sviði er ekki síður um
að ræða stökkbreytingar og mörg
dæmi þess, að þótt teiknaðar hafi
verið flugfraktmiðstöðvar með
öllum hugsanlegum tækniútbún-
aði, sem fyrir hendi var, þegar
teikningin var gerð, þá sé bygg-
ingin um það bil að verða gamal-
dags bæði fyrir tækni- og stærðar-
sakir, um það bil sem henni er
fulllokið.
Þegar litið er á framtíðaráæti-