Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1968, Page 27

Frjáls verslun - 01.04.1968, Page 27
FRJÁL5 VERZLUN 25 Allri flugfrakt er nú hlaðið og afhlaðið með stórvirkum tækjum, sem öll miða að 'því að stytta viðstöðuiíma flugvélanna eins mikið og hægt er. Með slíkum tækjum er hægt að afhlaða og hlaða aftur 35 tonnum á 30—45 mínútum. ódýrara að flytja með ílugvélum en með skipum, jafnvel þótt sjálf- ur flutningskostnaðurinn sé hærri með flugi. En hvar er þá sparnaðurinn? Hann liggur fyrst og fremst í tímasparnaði, en á N.-Atlants- hafsleiðinni má reikna með að jafnaði um 30 dögum í skipaflutn- ingi, en um 3 dögum með flug- vélum. Fyrst og fremst ber þá að líta á þann sparnað, sem verður á fjármagnsbindingu þeirra verð- mæta, sem liggja í vörunni. í öðru lagi eru vátryggingargjöld allt að 300% lægri í sumum til- fellum. í þriðja iagi er hægt að panta vörur með skemmri fyrir- vara og hafa því betri hömlur á vörubirgðum, svo og minnka þær vörubirgðir, sem liggja þarf með hverju sinni, og er sparnaður i þessu tilliti augljós. Ekki hvað sízt skiptir okkur íslendinga sú staðreynd, að með minnkuðum birgðum og styttum tima, sem binda þarf fjármagn í hverri sendingu, er hægt að vega upp á móti þeim tilfinnanlega rekstr- arfjárskorti, sem víða hamlar eðli- legum viðskiptaháttum. En sagan er ekki öll sögð með tímasparnaðinum. Stórlækkaður pökkunarkostnaður er í mörgum tilfellum næg ástæða til þess að flytja vörur flugleiðis. í stað þungra og fyrirferðamikilla um- búða, sem nauðsynlegar eru til þess að vernda vörurnar í skipa- flutningum, koma ódýrar og létt- ar umbúðir, sem gera heildar- flutningskostnaðinn mun lægri en með skipum, í mörgum tilfellum. Aðalástæðan fyrir lækkuðum tryggingarkostnaði er að vísu styttur flutningstími, en ennfrem- ur hefur komið í ljós, að skemmd- ir, vantanir og önnur tjón eru stórum fátíðari, þegar sent er með flugvélum. Margir eru þeir, sem hafa rek- ið upp stór augu, þegar þeir hafa sezt niður og reiknað út heildar- kostnað á flutningi og dreifingu vöru sinnar og komizt að þeirri niðurstöðu, að með því að skipu- leggja flutninga, birgðir, magn pantana o. s. frv., hafa þeir getað sparað sér stórfé, auk þess að gera starfsemi sína alla léttari í vöfum vegna meira fjármagns- frelsis, örari veltu og betri þjón- ustu við viðskiptavini sína. Hluti þeirra vöruflutninga, sem fer fram með flugvélum er mjög lítill í dag, eða aðeins um 2% af heildarvöruflutningum í heimin- um. Ef aftur á móti er aðeins mið- að við þær vörutegundir, sem enn eru taldar henta til flugflutninga, mun þessi hlutfallstala vera eitt- hvað hærri. En þetta er breytingunum háð, eins og allt annað í þessum hríf- andi og ört vaxandi atvinnuvegi, fluginu. Vörutegundir, sem fyrir nokkrum árum var talið, að myndu aldrei verða fluttar öðru- visi milli heimsálfa en með skip- um, eru nú fluttar daglega með flugvélum. Rafeindaheilar, iðnað- arvélar, framleiðsluvélar og að > ir stórir þungir hlutir eru nú fluttir á nokkrum klukkutímum yfir heimshöfin, pakkað í plast- hjúp einan saman. Að vísu kost- ar í mörgum tilfellum meira að flytja þessa hluti með flugi er, með skipum, en hér kemur tíma- sparnaðurinn til góða einu sinni enn, en það er í sambandi við þann tíma, sem umræddar vélar geta unnið með fullum afköstum, meðan þær annars væru í lest skips á leiðinni yfir hafið. í slík- um tilfelium, eins og til dæmis með rafeindaheila, er hægt að senda tvo í flugi fyrir sama heild- arkostnað og hægt er að senda einn með skipi. FLEIRI NOTA SÉR FLUGFRAKT. En hvernig er svo þessum mál- um háttað hjá okkur íslending- um? Flutningar til landsins með flugi hafa farið vaxandi síðustu árin, þótt þeir hafi ekki enn þró- azt í eins stórum mæli og í ná- grannalöndunum, þar sem stór- tækari flugvélar eru til reiðu fyr-

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.