Frjáls verslun - 01.04.1968, Qupperneq 28
26
FRJALS VERZLUN
Flugflutningar eru ekki lengur
bundnir við smásendingar, sem
mikið liggur á. Nú eru reglulegir
flutningar á vörum eins og vefn-
aðarvöru, sjónvarpstækjum, mót-
orhjólum, Iifandi minkum, fiski-
netiun, lifandi húsdýrum og eggj-
um daglegt brauð, og eru bó að-
eins talin örfá atriði hér.
ir innflytjendur en við höfum
hingað til haft upp á að bjóða.
Samt sem áður eru fleiri og fleiri
innflytjendur, sem sjá sér hag í
því að notfæra sér þann sparnað
og hagræði, sem flugflutningar
hafa í för með sér. Árið 1966
fluttu íslenzku flugfélögin um 790
tonn af vörum til íslands, en um
70 tonn frá landinu. Síðastliðið ár
voru flutt 980 tonn til landsins og
95 tonn til útlanda, eða samtals
1075 tonn. Heildarþungi inn- og
útflutnings íslendinga árið 1967
nam um 1,3 milljónum tonna, og
þar af var innflutningurinn um
880 þúsund tonn.
Af þessu má sjá, að aðeins
0,08% af flutningi til og frá ís-
landi fór fram með flugi árið 1967,
sem þó jókst um 24% frá árinu
1966.
Það fer ekki á milli mála, að
miklu meiri áherzla verður lögð
á að gera mögulegt að flytja sem
flestar vörutegundir til landsins í
stórum mæli með flugvélum. Hér
er um að ræða hagsmunamál allr-
ar þjóðarinnar, og með góðu
skipulagi má spara stórar fúlgur
fjár, þótt aðeins sé tekið til, hvað
sparast í fjármagnsbindingu við
tímasparnaðinn.
SKORTUR A FLUTNINGI
FRÁ LANDINU.
Mestu erfiðleikar íslenzku flug-
félaganna varðandi aukningu á
fraktrými til landsins stafa af
þeim einstefnuakstri, sem á flutn-
ingunum er, þ. e. a. s. skorti á
flutningi frá íslandi. Það gefur
auga leið, að ekki er hægt að
byggja upp flutninga til landsins
á lágum sérfarmgjöldum, ef nauð-
synlegt er að fljúga vélunum hálf-
tómum frá landinu. Eitt stærsta
atriðið í sambandi við hömlur á
því, að hægt sé að flytja út vörur
frá íslandi með flugvélum, er vit-
anlega takmörkun á vörutegund-
um, sem aðlaga sig til flugflutn-
inga.
Það skal tekið skýrt fram hér,
að flugflutningar eru ekki allra
meina bót í viðskiptum landa á
milli og að það eru ekki allar
vörutegundir, sem hægt er að
IIIJSMÆÐCII
muiiid Vals-vöriirnai*:
Sultu Sósulit
Avaxtahlaup Ediksýru
Marmdaði Tóniatsosu
Saftir Issósur
Matarlit Bóðinga
VAL.UII VANDAR VÖIUJIVA
VALUR Box 1313 — Sími 40795 — Reykjavík Sendum uwn ntlt luntl.