Frjáls verslun - 01.06.1968, Page 4
4
FRJALS VERZLUN
Fi^JAI.SS
VIERZLUIM
6. TBL. 196B
MANAÐARLEGT tímarit
UM VIÐSKIPTA- □□
EFNAHAGSMAL— STDFNAÐ 1939.
GEFIO ÚT í SAMVINNU VIO SAMTÖK
VERZLUNAR- □ G
ATHAFNAMANNA.
ÚTGAFU ANNAST:
VERZLUNARÚTGÁFAN h.f.
FRAMKVÆMDASTJO RI:
JÓHANN BRIEM.
AUGL'fsiNGASTJÖRl:
MAGNÚS B. JDNASSDN
SKRIFSTDFA □ÐINSGÖTU 4.
SÍMAR*.
B23GG AFGREIÐSLA
B23D1 AUG LYSINGAR
B23D2 RITSTJÓRN
PDSTHDLF 1193
RITSTJÖRI:
JDHANN BRIEM.
RITSTJÓ RNARFU LLTRÚAR:
BJÖRN V. SIGURPÁLSSDN
MARKÚS ÖRN ANTONSSDN
G REINAHÖFUNDAR:
BJÖRGVIN G UÐMU NDSSDN
FREYSTEINN JOHANNSSDN
GUNNAR GUNNARSSDN
INGVI HRAFN JDNSSDN
□ Ll TYNES
SIGURJDN JOHANNSSDN
STEINAR LÚÐVÍKSSDN
SVEINN ÁSGEI RSSDN
VILHELM G. KRISTÍNSSDN
LJÖSMYNDARI:
KRISTINN BENEDIKTSSDN.
SETNING □□ PRENTUNí
FELAGSPRENTSMIÐJAN H.F.
MYNDAMDT:
MYNDAMÓT H.F.
BOKBAND:
FÉLAGSBDKBANDIÐ H.F.
VERÐ í ÁSKRIFT KR. 65.- Á MÁN.
í LAUSASÖLU KR. BD.- EINT.
ÖLL RÉTTINDI ÁSKILIN.
bréf
fra
útgefanda
Eins og lesendum Frjálsrar verzlunar er kunnugt þá hefur
Frjáls verzlun aukið áskrifendahóp sinn úr nokkrum hundr-
uðum áskrifenda i þúsundir. Þessi mikla aukning áskrifenda
hefur verið útgefendum mikil hvatning þess að gera blaðið
betur og betur úr garði.
Sá dráttur, sem orðið hefur á Frjálsri verzlun á fyrri hluta
þessa árs, mun nú vinnast upp og munu áskrifendur fá næsta
tölublað, sem sérstaklega verður helgað Sjóvá, mjög fljót-
lega. Mun á næsta ári verða breytt nokkuð fyrirkomulagi
blaðsins og reynt að tryggja, að blaðið komi út ákveðinn dag
mánaðarins.
Af efni blaðsins er rétt að vekja sérstaka athygli á nýjum
þætti blaðsins, rannsóknir — vísindi, en þar er nú rætt við
Baldur Líndal um efnavinnslu úr sjó. Baldur hefur rannsak-
að þessi málefni um nokkurt skeið, og er hann með snjöll-
ustu vísindamönnum þjóðarinnar.
Álverksmiðjan í Straumsvík hefur nú verið í hyggingu
síðan í apríl 1967. Kemur það fram í viðtali við einn af fram-
kvæmdastjórum Isals, að unnt væri að byggja 187 þús. tonna
verksmiðju þar, en nú er unnið að stækkun verksmiðjunnar
úr 30 þúsiind tonnum í 60 þúsund tonn.
Olíuverzlun á Islandi hefur verið nokkurt deilumál manna
á meðal, og gefur F.V. yfirlit yfir þróun þessara mála að
undanförnu, og ræddi blaðið í því tilefni við hina þrjá for-
stjóra olíufélaganna.
Þá er í blaðinu grein um einmenningskjördæmi, en mikið
hefur verið rætt um að koma þeim á hér á landi.
Af öðru efni blaðsins má nefna grein eftir Björgvin Guð-
mundsson um gjaldeyrisdeildir bankanna og grein eftir
Svein Ásgeirsson um neytendamálefni.
Vegna óska um léttara efni í blaðinu, þá birtist hér í þessu
hlaði nýr þáttur um kvikmyndir.
Greinar eru um stjórnmál, starfskynningu, verzlunina Hí-
býlaprýði, landbúnaðarsýninguna og fleira efni.
Vill Frjáls verzlun þakka áskrifendum þeim, sem tóku
þátt í skoðanakönnun blaðsins, en úrslita er að vænta innan
skamms.