Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1968, Blaðsíða 38

Frjáls verslun - 01.06.1968, Blaðsíða 38
3B FRJÁLS VERZLUN höfuðið af hárfínni nákvæmni, enda sagði Burton þreytulega eft- ir upptökuna: „Og ég sem hélt, að þetta væri einn af þessum hríf- andi og þægilegu gamanleikjum.“ Söguþráðurinn er eitthvað á þessa leið: Maður hét Baptista, auðugur vel og bjó í bænum Padua. Hann átti tvær dætur. Eldri dóttirin var óhemja, trillt og villt á skapsmunum, en sú yngri var algjör andstæða. Báðar voru stúlkurnar fagrar útlits, en sú yngri, Bianca, hafði hirð biðla og aðdáenda í kringum sig — sú eldri, Katharina, hafði á hinn bóg- inn enga. Átti ólíkt skap þeirra systra mestan þátt í því. Baptista þótti þetta leitt, hugsaði sem svo, að ekki gæti hann gefið neinum manni Biancu, fyrr en Katharina væri gengin út, en enginn vildi ganga að eiga hana, því að allir óttuðust óhemjuskapinn í stúlk- unni. En þá kemur Petruchio til sög- unnar, sem engill af himni send- ur — lostafenginn ruddi af yfir- stétt frá Verona. Hann fær auga- stað á Katharinu, og kvikmyndin segir frá því, hvernig hann temur villibráð sína hægt og sígandi — þó mest með hennar eigin vopn- um. Þetta þætti ekki merkilegur efnisþráður á vorum dögum, en Shakespeare heitinn gæðir leikinn því lífi og fjöri, sem honum er lagið. Og enginn fer svikinn heim af þessari mynd, enda hefur hún fengið lofsamlega dóma gagnrýn- enda og þríhyrningurinn Taylor- Burton-Zeffirelli sagður hafa leyst Leikstjórinn leiðbeinir Burton og Taylor í einu atriðinu. verkefni sitt vel af hendi. sagði til um. Eitt ofsafengnasta atriðið í kvikmyndinni er, þegar elskhuginn og eiginmaðurinn til- vonandi eltir heitmey sína heila hlöðulengd, upp stiga, sem þar er inni, út um glugga og upp á þak- ið. Þar líður yfir stúlkukindina og hjónakornin blessuð hrapa fram af þakbrúninni í sameiningu — en lenda fyrir guðs náð í heybing og verður því ekki meint af. Þetta atriði spannar aðeins yfir sjö mín- útur í sjálfri kvikmyndinni, svo ofsafengið sem það nú er, en það þurfti átta daga kvikmyndun til að ná því. Atriðinu lýkur á því, að stúlkan fær lamið ektamann- inn tilvonandi með tréklump í Nauðsynleg tækí áhverju heimilt RAFTÆKJADEILD — HAFNARSTRÆTl 23 S|M| 18395

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.