Frjáls verslun - 01.06.1968, Blaðsíða 32
32
FRJAL5 VERZLUN
20-7 18
OLÍA 1967
a FRAMLEIÐSLA
□ NOTKUN í
MILLJÓNUl'í
TONNA.
uppskipun, smásölulaun og öllurn
öðrum kostnaði.
„Þá verður gaman“.
Þeir sögðu allir forstjórarnir að
eins og málum væri háttað væri
olíuverzlun á íslandi lítill ,busin-
ess‘. Þeir sögðu jafnframt, að með-
an ástand í útflutningsmálum okk-
ar væri eins og nú háttaði, lægi
í augum uppi, að við yrðum að
kaupa olíuna af Rússum til þess
að geta losnað við afurðir okkar.
En þeir vona líka allir að sá
tími sé ekki langt undan, er
við getum farið að kaupa alla
okkar olíu á frjálsum markaði, og
eins og Vilhjáimur hjá Esso orð-
aði það „þá verður gaman að reka
olíufélag á íslandi.“ Þá verður
líka hægt að gera frjálsa samn-
inga og ná hagkvæmustu kaupum
á hverjum tíma. Þegar að því
kemur mun samkeppnin heldur
ekki láta standa á sér og þjónust-
an eðlilega batna.
Samkeppnin hörð.
„Það er ekki rétt að engin sam-
keppni sé á milli olíufélaganna,
hún er hvergi harðari,“ sagði
Önundur hjá BP. „Og það andar
oft köldu milli forráðamanna fé-
laganna. Okkar samkeppni fer að
mestu leyti fram bak við tjöldin,
án allra auglýsinga. Það þýðir
ekkert fyrir okkur að vera að
eyða stórfé í auglýsingar, því að
hvað eigum við að segja. Við selj-
um allir sömu olíurnar og getum
Hallgrímur Fr. Hallgrímsson,
framkvæmdastjóri Shell.
„Það er erfitt að láta endana ná
saman.“
þar af leiðandi ekki sagt að benzín
úr BP tank sé betra en úr Esso
eða Shell tank, eða að þessi olía
sé betri en hin. Benzín er líka
minnsti hluti sölunnar eða 10%.
Við berjumst um skipin og hús-
eigendurna. Við getum að vísu
ekki boðið þeim betri vöru en hin-
ir, en við bjóðum ýmis kjör og
þjónustu, sem við höldum að
keppinautarnir bjóði ekki, og
þannig gengur það á víxl hjá okk-
ur öllum, og því fjarri lagi að sam-
keppni sé ekki fyrir hendi.“
Þegar við spurðum, hvort það
gæti ekki hænt að viðskiptavini
á benzínstöðvarnar, ef afgreiðslu-
mennirnir væru svolítið liprari og
t. d. þurrkuðu af rúðum og gættu
að olíunni, sögðu þeir að þetta
hefði nokkrum sinnum verið
reynt en staðreyndin væri sú, að
þjónustueðli væri íslendingum svo
fjarri, að afgreiðslumennirnir
hreinlega fengjust ekki til slíkra
hluta.
Samsteypa ekki hagkvæm.
Væri ekki hagkvæmara að sam-
eina félögin í eina samsteypu?
Nei, þá myndi afgreiðslustöðvum
og stöðum aðeins fækka og eng-
inn íslendingur kærir sig um bið-
raðir. Olíufélögin keppa sín á