Frjáls verslun - 01.06.1968, Side 10
!□
FRJÁLS VERZLUN
Skrifstofustjórar Gjaldeyrisdeildar bankanna frá upphafi: Ingólfur Þorsteinsson (til hægri) frá Landsbank-
bankanum cg Ingólfur Örnólfsson frá Útvegsbankanum.
svo komið, að 87% alls innflutn-
ingsins er frjáls. Eftir því sem
fleiri vörur hafa verið settar á frí-
lista, hefur fækkað þeim vörum,
sem háðar eru innflutningsleyf-
um. Starf Gjaldeyrisdeildar bank-
anna og ráðuneytisins við úthlut-
un gjaldeyrisleyfa vegna vörumn-
flutnings og úthlutun kvótavara
hefur því minnkað. Hins vegar
hefur fjölgað gjaldeyrisleyfum
vegna ýmissa dulinna greiðslna,
svo sem ferðakostnaðar, eignayfir-
færslna, vinnulauna, skipavið-
gerða erlendis, skipagjalda og
flugvélagjalda o. fl. Árið 1967 gaf
Gjaldeyrisdeiid bankanna út alls
58376 gjaldeyrisleyfi, sem var að
miklum mun meira en leyfafjöldi
Innflutningsskrifstofunnar árið
1959 síðasta heila árið, sem hún
starfaði. Auk þess sem Gjaldeyris-
deild bankanna annast úthlutun
gjaldeyris- og innflutningsleyfa,
hefur hún einnig ýmis önnur störf
með höndum. T. d. fjallar Gjald-
eyrisdeildin, í samráði við við-
skiptaráðuneytið, um erlendan
greiðslufrest vegna vöruinnflutn-
ings. Samkvæmt auglýsingu við-
skiptaráðuneytisins 31. maí 1960
er ekki heimilt að flytja inn vörur
með 3ja til 12 mánaða greiðslu-
fresti, nema sérstakt samþykki
komi til, er Landsbanki íslands og
Útvegsbanki íslands geta veitt
samkvæmt nánari ákvörðun við-
skiptaráðuneytisins. Vegna þess-
ara ákvæða hefur gjaldeyrisdeild-
in komið upp víxlaspjaldskrá yfir
erlenda vöruvíxla, og þar með
umsjón með erlendum greiðslu-
fresti. Rétt er að geta þess, að
1960 var heimilt að veita stuttan
greiðslufrest (allt að 3 mán.) fyr-
ir öllum vörum, en síðan hafa
tvívegis verið ákveðnar takmark-
anir á erlendum greiðslufresti
vegna vörukaupa. Þannig er nú
ekki heimilt að notfæra sér er-
lendan greiðslufrest á ýmsum al-
mennum vörum. Þá annast Gjald-
eyrisdeildin afgreiðslu á svo nefnd-
um áhafnagjaldeyri, en áhafnir
skipa og flugvéla fá ákveðna
prósentu launa sinna greidda í er-
lendum gjaldeyri.
Við framkvæmd gjaldeyrismál-
anna hefur viðskiptaráðuneytið og
Gjaldeyrisdeild bankanna haft
náið samráð við Seðlabanka ís-
lands. Hafa þessir aðilar með sér
stöðuga fundi.
Kostnaður við starfsemi Gjald-
eyrisdeildar bankanna er greidd-
ur af hluta leyfisgjalda, sem lögð
eru á gjaldeyris- og innflutnings-
leyfi. Lagt er %% leyfisgjald á
gjaldeyris- og innflutningsleyfi,
önnur en leyfi fyrir vörukaupum
í jafnkeypislöndum og námsgjald-
eyri. Renna leyfisgjöld þessi til
starfsemi Gjaldeyrisdeildar bank-
anna og verðlagsskrifstofunnar.