Frjáls verslun - 01.06.1968, Síða 30
30
FRJAL5 VERZLUN
Leirkerasmíði er talsvert að
ryðja sér til rúms hér á íslandi,
og í þeim tilgangi að kynna þessa
listiðn fyrir lesendum blaðsins,
snerum við okkur til eins af
meðlimum SÚM, Hauks Sturlu-
sonar, sem er nýkominn frá námi
í Edinborg og Kaupmannahöfn.
Haukur hefur sett upp vinnu-
stofu á annari hæð í yfirgefinni
vélsmiðju við Bergstaðarstræti 4.
Upp með húshliðinni liggur þröng-
ur járnstigi, þungfær gömlum kon-
um. Þegar við komum upp stig-
ann, blasir við okkur skonsa með
svignandi hillum undan hinum
fegurstu kerjum, bollum, bökkum
og vösum og mitt í dýrðinni stend-
ur Haukur og selur leir.
Fyrir innan er vinnustofan. Úti
í horni blasir við ein heljarmikil
hrærivél. í henni undirbýr Hauk-
ur ieirinn undir mótun. Hann tek-
ur leir af Reykjanesi og blandar
honum við skozkan til að auka
hitaþol leirsins. Eftir meðhöndlun
í hrærivélinni er hann tekinn og
hnoðaður líkt og deig. Þaðan ligg-
ur leiðin í mótunina. En öll fram-
leiðslan er módel handunnin, en
ekki steypt. Þetta fer þannig fram,
að rúmlega handfylli af leir er
tekin, sett á skífu, sem snýst, þar
er leirinn lítillega blandaður vatni.
Fer nú Haukur höndum um hann
og sjá, upp rís hinn fegursti vasi.
Nú er vasinn skafinn og sett í
hann ýmisleg munstur. Þá er vas-
inn þurrkaður og siðar hrábrennd-
ur. Það er gert við u. þ. b. 960
gráður á selsíus.
Eftir hrábrennsluna er vasinn
málaður og fullskreyttur, er hann
þá aftur brenndur og er það gert
við einar 1300 gráður. Heitir nú
efnið í vasanum steinleir, er hann
nú tilbúinn til notkunar og ætti
að standa næstu þúsund ár.
Haukur segist aðallega fram-
leiða brúkshluti, svo sem kerta-
stjaka, öskubakka og vasa ýmis-
konar. Þarna má líka fá hin feg-
urstu bollastell allt modelsmíð.
Svo virðist sem keramik sé að
komast í tízku, því Haukur selur
talsvert af þessu, m. a. lampafæt-
ur, sem verzlunin Ljós og Orka
tengir og hefur útsölu fyrir. Ann-
ars er aðalútsalan hjá Islenzkum
heimilisiðnaði.