Frjáls verslun - 01.06.1968, Blaðsíða 39
FRJAL5 VERZLUN
39
VERZLANIR
HIBYLAPRYÐI
Rœtt við Aðalstein Hallsson um húsgagnamarkaðinn
og starírœkslu verzlunarinnar.
ÞAÐ fyrsta, sem ungt fólk hugs-
ar um, þegar það er að stofna
heimili, er að eignast falleg hús-
gögn, og þeir eru margir aðilarnir í
Reykjavík og nágrenni, sem vilja
gjarnan selja þeim þessi fallegu
húsgögn.
Við Hallarmúla er glæsileg hús-
gagnaverzlun, sem heitir Híbýla-
prýði, og sem þrífst vel, þrátt fyr-
ir harða samkeppni. Eigendur
hennar eru bræðurnir Aðalsteinn
og Erlingur Hallssynir, og FV
ræddi stundarkorn við Aðalstein
um reksturinn.
— Verzlunin var upphaflega
sofnuð árið 1962, en við bræðurn-
ir keyptum hana 1965. Hún hefur
alltaf verið starfrækt í Hallar-
múla og er líklega ein af mjög fá-
um húsgagnaverzlunum í bænum,
sem hefur húsnæði sérstaklega
teiknað fyrir þesskonar verzlun.
Annars erum við reyndar, eins og
allir aðrir, sem verzla með hús-
gögn, í hálfgerðum vandræðum
með sýningarpláss, því þótt gólf-
flöturinn hjá okkur sé stór og
sérstaklega til þess gerður, er
margt að sýna og það tekur mikið
pláss.
— Hvers konar húsgögn eruð
þið helzt með?
— Við erum, ef svo má segja,
með öll almenn húsgögn. Markað-
urinn er svo þröngur, því miður,
að það er varla hægt fyrir verzlan-
ir að hafa sérsvið eins og t. d. að
verzla eingöngu með skrifstofu-
húsgögn eða þess háttar.
— En hvaða viðartegundir selj-
ið þið þá mest?
— Það er langmest sala í tekki.
Pallisander og eik seljast einnig
vel, en svo aftur lítið af öðrum
viðartegundum. Áklæðin, sem við
notum, eru einkum úr draloni og
alull. Fyrst eftir að við byrjuðum,
fluttum við töluvert inn af á-
klæði, en erum nú að mestu hælt-
ir því. íslenzka framleiðslan er
sízt verri, og við skiptum mest við
Gefjun. Hvað stíl snertir, er hann
ennþá fremur léttur, en ekki eins
léttur og hann var fyrir nokkrum
árurn.
— Hvaðan fáið þið ykkar sölu-
varnig?
— Við höfum samband við nær
alla framleiðendur hér á landi og
reynum að velja það bezta, sem
þeir hafa á boðstólum. Svo erum