Frjáls verslun - 01.06.1968, Blaðsíða 41
FRJÁLS VERZLUN
41
AD KOMA FRAM í
SJÓNVARPI...
MARGUR hugsar lítið um list-
ina að koma vel fyrir í útvarpi
eða sjónvarpi, fyrr en allt í einu
honum sjálfum stendur til boða
að koma fram í öðru hvoru þess-
ara fjölmiðlunartækja. Þó er það
svo með þessa list sem aðrar, að
fæstum ferst hún vel úr hendi án
einhvers undirbúnings.
Nauðsynlegt er að öðlast góðan
skilning á eðli þessara fjölmiðl-
unartækja, áður en fram í þeim
er komið. Hvort sem um fram-
komu í útvarni eða sjónvarpi er
að ræða, er gervimennska mjög
óviðurkvæmileg, því enginn kem-
ur áheyrandanum vel fyrir hlust-
ir né áhorfandanum vel fyrir
sjónir, nema hann hafi lag á að
koma algerlega eðlilega fram í
útsendingunni.
UNDIRBÚNINGUR.
Skipulagður undirbúningur auð-
veldar tafarlaust orðaval, þegar
að útsendingunni kemur, hvort
sem hún er í formi beinnar ræðu,
viðtals eða umræðna.
Eftirfarandi spurninga er gott
að spyrja sjálfan sig við upphaí'
undirbúningsins:
1. Hver eru mikilvægustu atriði,
sem ég þarf að minnast á varð-
andi mál þetta? (Raðaðu þeim
á iista eftir mikilvægi þei'ra).
2. Hverjir hafa áhuga á atriðum
þessum? (Annar stuttur listi
mjög mikilvægur. Sá mun
hjálpa þér til að setja sjónar-
mið þín fram á viðkunnanleg-
an hátt og með hressandi sann-
færingu).
3. Hvernig gæti ég komið atrið-
um af lista 1 á framfæri á sem
stytztan hátt í samræðum við
einhverja af lista 2?
4. Gæti ég ekki fundið skemmti-
lega mynd eða dæmisögu til
að skýra atriðin á lista 1?
5. Hvaða óþægilegum spurning-
um má ég búast við og hvaða
röksemdafærslur get ég þurft
að kveða niður? Hvernig get
ég notfært mér eitthvert þess-
ara til að koma höfuðsjónar-
miðum mínum á framfæri?
(Listi 1).
6. Hvers vildi ég láta spyrja mig,
til þess að þessi höfuðsjónar-
mið mín yrðu eðlileg, en þó
hvöss andsvör? (Ritaðu þær
spurningar niður í mjög stuttu
máli).
Byrjaðu mál þitt á djarflegan
og skemmtilegan máta til að ná
þegar í stað athygli hlustandans.
Takist það ekki, missir hlustand-
inn áhuga og slekkur á tæki sínu.
Hafðu einnig hugfast, að endir
máls þíns er ekki síður áhrifamik-
ill en upphaf þess.
Stuttar og gagnorðar setningar
hafa mest áhrif. Notaðu venjulegt
talmál, en forðastu orð og orðalag,
sem eru hlustandanum torskilin.
HANDRIT.
Bezt er að handritið sé í 4-blaða
broti, tví- eða þrídálka, og notaðu
paonír, sem ekki skrjáfar. Reyndu
alltaf að ljúka setningu neðst á
blaðsíðu. Hafðu þerriblað undir
hverri síðu til þess að geta rennt
henni hljóðlega eftir borðfletinum.
RÖDD OG FRAMSETNING.
Framsetning máls þíns á að
gefa til kynna vingjarnleika,
hreinskilni. sannfæringu og
greind
VJNGJARNLEIKA er unnt að
sýna með réttri tónhæð og óform-
legu orðava'i.
VINGTARNLEIKA er eytt með
h'Vamiegri eða andlegri spennu,
hárri röddu, skrautlegum orðatil-
tækjum og áhugaleysi fyrir þeim,
er þú ræðir við.
SANNFÆRINGU er því aðeins
komið á framfæri, að þér finnist
mál þitt bæði skemmtilegt og
mikilvægt og að það sé árangur
eigin hugsunar, tilfinninga og at-
hugana.
SANNFÆRINGU vantar, þegar
rök þín eru flöktandi.
HREINSKILNI finnst á tafar-
lausum svörum, samræmi og festu
í framkomu og málfari.
HREINSKILNI dylst, þegar
skortur á undirbúningi orsakar
flausturslegt eða stirt viðtal: þeg-
ar heilinn reynir í ofboði að fram-
kalla utanaðlærð minnisatriði, og
í sjónvarpi þegar þú talar við ein-
hvern, en horfir á eða beinir orð-
um þínum til annars.
GREIND er augljós, þegar þú
talar af eigin reynslu og ályktun-
um.
GREIND er hulin, þegar þú
japlar á margþvældum setning-
um, hversu skynsamlegar, sem
þær annars kunna að vera
Notaðu alltaf sama raddstyrk
og í viðræðum við eina persónuog
mundu, að ekki er hægt að ætlast
til að hlustandinn treysti þér full-
komlega, nema hann finni, að þú
sjálfur hafir fullkomið traust á
þér og þínum málstað.
Viljir þú leggja sérstaka áherzlu
á eitthvert atriði, er áhrifaríkast
að tala hægar og þýðar. Notfærðu
þér þagnir vel, einkum þega’- þú
hefu” máls á nýju atriði eða byrj-
ar nð ræða um málið frá nýrri
hlið. Andartaks þögn gefur hlust-
anda tíma til að melta það. sem
þú sagðir síðast, áður en þú vekur
máls á öðru. Þögn er einnig góð
til að leggja aukna áherzlu á
næstu setningu á eftir.
Tilbreytingarleysi er versti ó-
vinur upplesarans. Til að forðast