Frjáls verslun - 01.06.1968, Síða 46
46
FRJALS VERZLUN
HEKLA HF. — Á sýningar-
svæði sínu kynnti fyrirtækið vél-
ar og tæki til landbúnaðarstarfa
frá þremur fyrirtækjum, John
Deere, Caterpillar og Land-Rover.
Frá fyrstnefnda fyrirtækinu má
nefna nýja árgerð af dráttarvél-
um, þyrilsláttu og heybindivél.
Þyrilslátturnar hafa vakið mikla
athygli, og á sýningarsvæðum
hinna innflutningsfyrirtækjanna
mátti einnig sjá slíkar sláttuvél-
ar. Er augljóst, að hér er um
mikla byltingu að ræða á sviði
sláttuvéla, þar sem þær eru mun
afkastameiri en hinar fyrri. Frá
Caterpillar voru sýndar jarðýtur,
en þær eru löngu orðnar þekktar
hérlendis, og frá Land-Rover var
sýnd jeppabifreið.
ÞÓR HF. — Fyrirtækið kynnti
tæki og vélar frá fjölmörgum fyr-
irtækjum, og má nefna: Ford-
dráttarvélar af nýrri árgerð,
breyttar í útliti og yfirleitt með
aukin vélarhestöfl, fjölfætlur,
hvirfilsláttuvélar og jarðtætara
frá Fahr-verksmiðjunum, Grinne-
kartöfluupptökuvél, mjög afkasta-
mikla og margt fleira.
VÉLADEILD SÍS. — Á svæði
þessu kenndi margra grasa, en
mesta athygli vakti þó líkan af
heyhlöðu og súgþurrkunarkerfi,
sem gerir heyfóðrun sjálfvirka.
Hefur véladeildin nú á prjónun-
um að láta setja upn einn slíkan
turn hér heima í tilraunaskyni,
en uppkominn er verð hans með
öllum nauðsyníegum tækjum, á-
ætlað um 700 þús. krónur. Þá má
einnig nefna PZ-sláttuvélar, hey-
þyrlur, múgavélar, áburðardreif-
ara og loks B & SA haugsugur.
DRÁTTARVÉLAR HF. — Af
tækjum og vélum, sem þarna var
kynnt, má nefna Busatis-Werke
sláttuvélar með tveimur ljáum en
fingralausar. Eru þær sagðar mjög
hraðvirkar. Ennfremur Paul
Mueller mjólkurkæla úr ryðfríu
stáli, en þeir hafa þegar verið
settir upp á nokkrum bæjum
austanfjalls að tilstilli mjólkur-
bús Flóamanna. Loks er að geta
Massey-Ferguson dráttarvélanna
með átakskerfinu, er vakið hefur
verðskuldaða athygli.
HAMAR HF. — Helzta stolt
fyrirtækisins á sýningunni voru
nýjar gerðir af Deutz-dráttarvél-
um, sem eru mikið endurbættar
frá því sem áður var. Eru þær frá
25 til 100 hestöfl. Þá sýndi fyrir-
tækið heyvinnuvélar frá hinu
þekkta þýzka fyrirtæki Heuma.
Einnig má þar nefna rakstrar- og
snúningsvélar, heyþyrlur og hvirf-
ilsláttuvélar af nýjustu gerð. Loks
er að geta um Eberhardt-hey-
hleðsluvagn. Hann er þannig bú-
inn, að hann bæði hleður sig og
afhleður sjálfur.
GLÓBUS HF. — Fyrirtækið
sýndi þarna ákaflega fjölbreytt
tæki og vélar og skal hér nefnt:
Fella-heytætla, þyrilsláttuvél og
heyvagn, sem hleður sig og af-
hleður á sjálfvirkan hátt. Nýja
gerð af David Brown dráttarvél-
um, með nokkru fleiri vélarhest-
öfl, en aðrar vélar af þessari gerð,
sem verið hafa á markaðnum. Og
að lokum New Holland heybindi-
vél, en þær eru að sögn mest
seldu heybindivélarnar hérlendis.
Hér hefur aðeins verið stiklað
á því alstærsta, sem fyrir augu
bar á sýningarsvæðum þessara
innflutningsfyrirtækja, of langt
mál yrði að rekja það allt.
En það má gjarna geta þess í
lokin varðandi Landbúnaðarsýn-
inguna ’68, að mikill áhugi er nú
hjá forráðamönnum landbúnaðar-
ins, að láta ekki líða aftur svo
langt á milli landbúnaðarsýninga
og var milli sýningarinnar 1947
og sýningarinnar núna. Jafnvel
getur svo farið, að við fáum aðra
landbúnaðarsýnngu eftir svo sem
5—10 ár.