Frjáls verslun - 01.05.1970, Síða 13
FRJÁLS VERZLUN
13
fjármagnið. Spörun getur átt sér stað á ýmsan hátt. Henni má skipta í tvo
höfuðflokka, frjálsa og þvingaða spörun. Þvinguð spörun finnst í ýmsum
myndum hér á landi, t.d. sem greiðsluafgangur hjá ríkissjóði, í lífeyrissjóð-
um, skyldusparnaði o. fl. Mun óhætt að segja, að fáir möguleikar til að
þvinga fram spörun hafi verið ónotaðir. Þegar Iitið er til frjálsar spörunar
er ekki um auðugan garð að gresja. Sparisjóðsbækur og nú síðustu árin
spariskírteini auk fjárfestingar í íbúðarhúsnæði hafa verið megin spöruna.r-
form almennings. Spörun í hlutabréfum, skuldabréfum eða eignaraðild að
fyrirtækjum hefur verið nær c-þekkt. Fyrst og fremst er orsakanna að leita
í skattalögunum. Spörun í hlutabréfum og öðrum þess háttar eignum, mun
verða undir í samkepnninni við önnur sparnaðarform að óbreyttum skatta-
íögum. Jafnfra.mt þýðir þetta, að atvinnufyritæki á íslandi verða ekki
almenningseign nema með þjóðnýtingu. í öðru lagi vantar hér hlutabréfa-
markað- til þess að almenningur geti beypt og selt hlutabréf sín á oninberum
marka.ði, þar sem markaðsverðið, seni ákveðst af framboði og eftirspurn,
er opinbert og öllum kunnugt.
Jafnvel þótt okkur takist. að auka snörun. mun fjármagn samt halda
áfram að vera takmarkað. Mikið er undir því komið, að hið takmarkt 5a
fiármagn nýtist sem bezt. Munurinn á því að hafa ávaxtað fjármagn með
10% eða 12% vöxtum er orðinn æði mikill eftir nokkur ár. Oft er þó munur-
inn á hagkvæmni tveggja framkvæmda mun meiri. Hér á landi ráða tveir
aðilar mestu um ávöxtun fjármagnsins. Annars vegar ríkið og aðrir opin-
berir og hálfopinberir aðilar að meðtöldum ýmsum sjóðum, og hins vegar
bankakerfið. Fra.mkvæmdir á vegum ríkis og annarra opinberra aðila verða
aldrei eingöngu metnar í beinum peningarlegum gróða, heldur koma þar
ýmisleg félagsleg sjónavmið til viðbótar. Við margar opinberar fra.mkvæmd-
ir er raunar félagslega markmiðið aðalatriðið. Engu að síður er þó sjálfsagt
að gera þá kröfu. að allar framkvæmdir séu þannig metnar af sjónarhóli
hagkvæmninnar til þess að tryggja, að fjármagnið ávaxtist sem bezt, ef
ekki á peningalegan hátt, þá á félagslegan.
Þa.r sem friáls lánsfjármarkaður er ekki fyrir hendi. fellur öll ábyrgð á
hagkvæmri nýtineu þess fjármagns. sem beint er til atvinnuveganna. í hlut
banka og fjárfestingarlánasjóða. Stjórnendur þessara stofnana hafa í liendi
sér, hvernig okkur nýtist fjármagnið. Ábyrgð stjórnendanna er mikil, og
nauðsynlegt er, að þeir hafi sér til aðstcðar sérmenntað starfsfólk, sem getur
vegið og metið einstakar framkvæmdir. Mest er bó um vert, að stjórnendurn-
ir séu óháðir, og þurfi ekki að hafa aðra leiða.rstjörnu en landshag.
Takist okkur að nýta vinnuafl og fjármagn á sem hagkvæmastan hátt,
þurfum við ekki að kvíða framtíðinni.
220 000
Það eru núna 20.000 ár síðan Iiomo Hcidelbergensis preníuðu fyrstu fótsóla sína á leir-
inn á Rínarbökkum. Þetta var seinlegt. Fyrir 119 árum byrjuðu þeir svo að framleiða
prentvélar (þær beztu í heimi) og núna i desember síðastliðnum voru þeir búnir að
framleiða 220.000 vélar — og tilkynna yður það liér með.
HEIDELBERGER
AG.
& CD.