Frjáls verslun - 01.05.1970, Blaðsíða 35
FRJALS VERZLUfvf
35
Sjávarútvegur, fiskiðnaður
Er ekki hægt að hagnast meira á
saltfiskinum með frekari vinnslu?
Saltfiskurinn er hornreka í íslenzkum fiskiðnaði. . .
Á síðasta ári fluttum við ís-
lendingar út saltfisk, blautsalt-
aðan saltfisk og þurrkaðan
saltfisk, fyrir um 930 milljónir
króna. Allur þessi fiskur var
seldur í hlemmum með bein-
um, roði og sporði, og kaup-
endunum látið það með öllu
eftir að gera úr honum marg-
víslega unninn og framreiddan
fisk. Nú er saltfiskurinn tiltölu-
lega þægilegur í meðförum, t.
d. samanborið við hraðfrystan
ifisk, og því vaknar óneitan-
lega stór spurning um það,
hvort ekki sé unnt að hagn-
ast meira á saltfiskinum en
raun ber vitni með frekari
meðferð hér á landi, vinnslu í
neytendapakkningar. Með salt-
fisk að verðmæti 930 milljónir
króna á ári, mætti ætla að
nokkurt svigrúm væri til til-
rauna í þessa átt og ástæða
til að gera ráð fyrir að þær bor-
uðu sig fljótt, þegar um slíika
upphæð er að ræða — ef þær
tækjust. En eftir því sem blað-
ið hefur komizt næst með við-
tölum við ýmsa aðila, hafa slík-
ar tilraunir verið mjög óveru-
legar og nánast engar alvarleg-
ar en mönnum ber ekki saman
um árangurinn. Því á spurning
blaðsins örugglega rétt á sér
og því er henni varpað fram
hér.
Allur saltfiskútflutningur er
undir einum hatti, Sölusam-
bandi ísl. fiskframleiðenda, og
er því um algeran einokunar-
hring að ræða, þeir eru þó þrír
aðilarnir í freðfiskútflutningi.
Ekki kemur blaðinu til hugar,
að hægt sé að ásaka forráða-
menn SÍF um neins konar mis-
ferli, en kerfið er einokun og
eftir höfðinu dansa limirnir.