Frjáls verslun - 01.05.1970, Blaðsíða 43
FRJÁLS VERZLUW
43
Sölumennska
Prentaðar
uppiýsingar
Einn mikilvægur þáttur í
nútíma sölumennsku er
prentaðar upplýsingar og leið-
beiningar. Þessi þáttur er enn
á nokkru frumstigi hér á landi,
eins og auglýsingastarfsemi al-
mennt. En nú þegar við höfum
fært okkur um set og gerzt
þátttakendur í viðskiptabanda-
lagi með möi'gum öðrum þjóð-
um, og við verðum að stórefla
samkeppnisaðstöðu okkar á al-
þjóðlegum vettvangi, er óhjá-
kvæmilegt að endurskoða þenn-
an mikilvæga þátt sölumennsk-
unnar. Nýlega gaf iðnaðarráðu-
neytið út bækling á emsku um
íslenzkar fiskiskipasmiðar,
„Iceland, Foremost in Fishing“,
og í sambandi við FAO-ráð-
stefnuna hófst dreifing á
lausblaðaupplýsingum á ensku
um véla- og tækjaframleiðslu
okkar, en Útflutningsskrifstofa
FII stendur fyrir útgáfunni.
Þetta eru skref í áttina, og mik-
ilsvert, að einungis sé um
byrjun að ræða, en að þegar í
upphafi verði þess gætt, að
samræma þessa upplýsinga-
miðlun sem bezt og gera hana
sem aðgengilegasta.
í sambandi við þessa byrjun,
vill blaðið benda á sem fyrir-
mynd upplýsinga- og leiðbein-
ingastarfsemi damska utanrík-
isráðuneytisins, m. a. með út-
gáfu bæklingsins „Danmark
Review“, sem ekki er aðeins
kynning á framleiðslu Dana,
heldur og á þeim leiðum, sem
fyrir hendi eru til þess að nálg-
ast viðskipti við framleiðendur
og um land og þjóð cg þá þjón-
ustu, sem Danir veita ferða-
mönnum í viðskiptaerindum.
Ýmisar fleiri íyriiTnyndir eru
tiltækar en þessi er nefnd hér
sem dæmi. I „Denmark Revi-
ew“ er dregið saman í læsilegt
og fræðandi form flest það sem
máli skiptir fyrir þá, sem á-
huga fá á viðskiptum við
danska framleiðendur og heim-
sækja þá í heimalandinu. Með
þessum hætti geta Danir vænzt
þess, að njóta til hins ítrasta
viðskiptamöguleika og sam-
skipta við aðra. Aukaatriðin
eru nefnilega oft mikilvægust.