Frjáls verslun - 01.05.1970, Qupperneq 44
44
FRJÁ'LS verzlun
Erlendar fréttir
Lr öllum álfum
iVorsk tæki í skip
Norski kaupskipaflotinn er
nú sá 4. stærsti í heiminum og
sífellt er unnið að endurnýjun
hans og umbótum jafnhliða til
þess að standast samkeppnina
á heimshöfunum. Eins og að
líkum lætur er skipasmíðaiðn-
aður Norðmanna í örum vexti,
en honum er fyrst og fremst
beint að smíði sérhæfðra skipa
og kapphlaupið um smíði risa-
tankskipa er leitt hjá honum
að mestu.
En sá iðnaður, sem nú er orð-
inn jafnvel enn mikilvægari,
lýtur að smíði tækja í skip.
Norðmenn annast nú orðið
slíka tækjagerð fyrir allar sigl-
ingaþjóðir heims, og færist það
stórlega í vöxt með ári hverju.
Mörg norsk fyrirtæki í þessum
iðnaði hafa náð langt og sum
tekið forystu í tækjagerð á
sínum sviðum.
Sjálfsafgreiðsla í skó-
búftum
Fyrirtækið Umdasch KG. í
Amstetten í Austurríki býður
nú kerfi fyrir sjálfsafgreiðslu í
skóbúðum, en þetta fyrirtæki
skipuleggur sjálfsafgreiðslu-
kerfi og búðainnréttingar.
Þjónusta viö ferðamenn
Austurríki er eitt af helztu
ferðamannalöndum Evrópu.
Nýlega fór þar fram nákvæm
Gallup-könnun meðal erlendra
ferðamanna. Flestir rómuðu
þægilegt andrúmsloft og fagurt
landslag. Aðeins 2% voru von-
sviknir, en 44% kváðust
myndu koma bráðlega aftur.
Ferðamálamenn í Austurríki
treysta ekki eingöngu á nátt-
úrufegurð, þeir leggja einnig
sérstaka áherzlu á þjónustuna
með byggingu þjónustufyrir-
tækja og menntun starfsliðs.
Um 600 ungir Austurríkisbúar
stunda nú nám í matreiðslu
og framreiðslu; æðri ferða-
mannaskólarnir þrír færa stöð-
ugt út kvíarnar og jafnvel í
„Hochschule fiir Welthandel“ í
Vín er stofnun, sem fjallar um
ferðamál.
Stærsta skíðaverk-
smiðjan
Með austurrískri aðstoð er nú
á döfinni að koma á fót í Rúss-
landi skíðaverksmiðju, sem
framleiða á 3 millj. para á ári,
og á því að verða stærsta
skíðaverksmiðja heims. Það er
austurríska verksmiðjan
Kneissl, sem aðstoðar Rússana.
Umbætur í malbikun
Ný malbikuð hraðbraut í
Odense í Danmörku úr nýrri
malbiksblöndu, sem gerð var
í tilraunaskyni, hefur reynzt á
þann veg, að viðnám fyrir
hemlun er helmingi meiri en
venjulega. Rannsókn á þýðingu
þessa fyrir umferðaröryggið
bendir til, að slys í árekstrum
verði helmingi færri. Skiptir
það vitaskuld ekki svo litlu
máli á umferðarþungum hrað-
brautum og raunar einnig öll-
um götum, þar sem slysahætta
er mikil.
Malbiksblandan, sem virðist
ætla að hafa svo mikla slysa-
vamaþýðingu, er úr Epoxy,
Bitumen og asfaltafbrigði, og
er kölluð Shellgrip.
OK og Calsberg í
Kuala Lumpur
Dönsku fyrirtækin, 0stasia-
tiske Kompagni og Carlsberg
ölverksmiðjurnar, hafa komið
sér saman um stofnun ölverk-
smiðju í Kuala Lumpur, og er
hlutafé hennar 20 millj.
danskra króna. Er gert ráð
fyrir því að hið opinbera í
Kuala Lumpur eignist síðar allt
að helming hlutafjárins. 0K
hefur annazt sölu á Carlsberg
öli til Kuala Lumpur, en vegna
hækkandi innflutningsgjalda,
hefur salan minnkað verulega.
Því hafa fyrirtækin brugðið á
það ráð, að notfæra sér áunnar
vinsældir Carlsberg ölsins með
því að reisa verksmiðju þama
austur frá og sleppa þannig við
innflutningsgjöldin.
Til Tallin með
“Vodka Express“
Ferjan „Vodka Express” fer
frá Helsinki árla morguns og
kemur fjórum stundum síðar í
höfn í Hansa. Fyrir 1 þús. kr.
kemst ferðamaðurinn svo í
fimm stunda ferð til Tallin,
sem nú er sovézk borg. Verðið
gildir aðeins fyrir fargjaldið.
Vodkað er ekki innifalið.
Eins dags ferðir til Tallin
hafa náð miklum vinsældum
meðal ferðamanna, einkum
finnskra, enda kjörið tækifæri
til þess að gægjast inn fyrir
landamæri Sovétríkjanna. Slík-
ar ferðir voru leyfðar 1965 í
fyrsta sinn eftir seinni heims-
styrjöldina, og þá fóru 5 þús-
und manns til Tallin, en í fyrra
fóru 14 þúsund manns þangað.