Frjáls verslun - 01.05.1970, Síða 45
FRJÁLS VERZLUNf
45
Erlend fyrirtæki
STÓRVELDID
GILLETTE
Stórveldið Gillette Industr-
ies Ltd. hóf ekki alls fyrir
löngu að selja nýju rakvélarteg-
und, Techmatic, sem nú þegar
hefur náð verulegum vinsæld-
um hér á landi. Um svipað
Franskættaður Kanadamað-
ur, King Camp Gillette að
nafni stofnaði fyrirtækið árið
1901, og var það í fyrstu til
húsa á fiskilofti einu í Boston.
Ekki blés byrlega framan af.
Heildarsalan fyrsta starfsárið
nam aðeins 4 þúsund dollur-
um, en skuldirnar voru þá
orðnar 10 þúsund dollarar. En
það rofaði til, og þrem árum
seinna keypti fyrirtækið sex
hæða hús í suðurenda Boston
fyrir starfsemi sína.
utan á bláu Gillette rakblaða-
pökkunum orðin eitt þekktasta
vörumerki heims.
Árið 1948 keypti Gillette
Tony verksmiðjurnar, sem
framleiddu þá þegar þekkt hár-
lagningarefni. Þær framleiða
nú að auki ýmsar aðrar snyrti-
vörur. Paper Mate verksmiðj-
urnar urðu eign Gillette nokkr-
um árum síðar, en þær fram-
leiða m. a. kúlupenna og blý-
anta. Síðast fyrir fáum árum
keypti Gillette svo Braun sam-
King Camp GiIIette, stofnandi stórveldisins GILLETTE,
leyti og sala þessarar nýju rak-
vélartegundar hófst hér, kom
sölustjóri verksmiðjanna í Ev-
rópu, Asíu og Afríku A. M.
Wilson, hingað til lands, og
gafzt Frjálsri Verzlun tækifæri
til að ræða við hann. Grein
þessi er m. a. byggð á því við-
tali.
SÖGUÁGRIP.
Gillette hefur um áratuga-
skeið verið í fararbroddi í
framleiðslu hvers kyns raká-
halda, og nú rekur það einnig
nokkur dóturfyrirtæki í öðr-
um framleiðslugreinum.
Árið 1909 hófst landnám
Gillette í Evrópu með stofnun
verksmiðju í Englandi.
í heimsstyrjöldinni fyrri
lögðu yfirmenn Bandaríkja-
hers mikla áherzlu á snyrti-
mennsku hermannanna, og þá
auðvitað að þeir létu ekki und-
ir höfuð leggjast að vera jafn-
an vel rakaðir. Sala rakáhalda
jókst og þó einkum rakblaða,
og naut Gillette góðs af. Urðu
ár heimsstyrjaldarinnar fyrri
mikill uppgangstími hjá Gill-
ette verksmiðjunum. Þegar
King Camp Gillette andaðist
1932, var andlitsmynd hans
steypuna í Þýzkalandi, sem
þekkt er fyrir framleiðslu raf-
tækja.
Þetta lauslega yfirlit yfir
sögu Gillette og athafnir, gef-
ur hugmynd um þá þróun sem
orðið hefur í iðnaðarlöndunum,
í Bandaríkjunum og Vestur-
Evrópu, fyrirtæki hafa stækk-
að og færzt saman til þess að
standast nýjar kröfur á stækk-
andi mörkuðum, sem smáfyrir-
tækjum hefur verið um megn,
vegna takmarkaðra fram-
leiðslumöguleika og fjármagns-
skorts. Um leið hafa svo önnur
fyrirtæki lagt upp laupana.