Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1970, Side 58

Frjáls verslun - 01.05.1970, Side 58
5B FRJÁLS VERZLUN Skoðana- kannanir í sfjómmáRum. Þingrof og kosningar...? frá ritstjórn Hvernig á að taka á mikilsverðustu máluin þjóðarinn- ar á örlagastundum, hvernig á að taka örlagaa/tburðum, hvernig á að skapa sem traiustasta og öflugasta forystu. hvernig á að meta ábyrgð ráðamanna, hvernig á að (halda lífi í istjórnmálum milili reglulegra kosninga, hvernig á að gera stjórnun í þjóðarbúskapnum og atvinnuHifinu traustará afl við breytilegar aðstæður? Allt eru þetta spurningar, sem skjóta ofl upp kolli í sveiflukenndu líifi okkar íslendinga. En livei-nig á að fá svör við þessum spurnmgum? Nokkrar tilraunir 'hafa verið gerðar til þess að kanna almenningsálitið í slikum tilfellum og þessum, en enmiþá hefur engum aðila tekizt að ná traustri fótfestu á slíku hleri. Regluilegar kosningar í lýðfrjálsum rikjum eru í senn dómslóll og ráðstöfunarrét'tur horgaranna. I kosningum er þó þjappað saman stóru og smáu og mörgu harla ó- líku, og í þeim gefst eklki tækifæri til að fjal'la til þraut- ar um nema brot af þjóðmálum eða sveitarstjórnarmál- um. Stumdum sker eitt mál sig úr og ræður úrslitum al- gerlega án tillits til þess, að rnörg önnur mál kunna i rauninni eininig að ibafa úrsiitaþýðingu. Vandinn er sá, að hrúa að einhverju leyti bilið inilli reglulegra kosn- inga, og auka álhrif borgaranna almennt á stjórnun og stjÖrnarathafnir hverju sinni. Dæmi: Hver veit hug a'l- mennings til síðiustu þróuinar efnahagsmála, hatans, þeirra aðgerða sem eru að baki og annarra, sem eru framundan, þ. á. m. kjarabóta, sem ræða imá um á marg- víslegum forsendum? Þetta er í rauninni hulin ráðgáta. Sveitarstjórnarkosningarnar falla á sama tíma, en þær segja sáralítið sem ekkerl til um skoðun almennings í þessum efnium. Það liefði vitaskuld mátt nota tækifærið og ispyi’ja kjósendur. En það er ekki gert. Við höfum enga slolflnun og ekkert kerfi til þess að gera það. Það myndi stuðla að traustari athöfnum, hverjir sem í Mut eiga. Það má vísa lil nýjustu atburða í Bretlandi, þar sem finna má nokkra hliðstæðu í efnahagslþróuninni. Já, hvað er að gerast þar? Þingrof og kosningar. Hvers vegna? Af því að Bretar standa nú á liliðstæðum tíma- mótum og við í efnahagsmálum og samskiptum við um- heiminn. Skoðanakannanir hafa haft stói’vægileg áhrif á viðhrögð stjórnmálamanna þar, og nú síðast hvatl óbeint til kosninga með skömmum fyrirvara. Brezkir kjósendur hafa stöðugt fengið að segja til um álit sitt á gangi mála og Ihorfum í gegn um skoðanakannanir og nú fá þeir að kjósa og fella sinn stóradóm á timamótum. Þótt þetta sé vissulega ekki einhlýt fyrirmynd, má draga af henni mikilvægar álýktanir, eins og hér hefur verið gert. En niestu máli skiptir, að við notum þá mögu- leika, sem i þessum vinnuhrögðum felast, við okkar að- stæður, til þess að virkja almeniningsálitið miklu meira í þágu stjórmunar og sljórnarathafna.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.