Frjáls verslun - 01.08.1973, Page 14
vextir hækkuðu yfirleitt um
2-3%, en afurðalánavextir
hækkuðu þó minna og t. d. að-
eins um 1%, ef útflutningsaf-
urðir eiga í hlut. Jafnframt
lýsti bankastjórn Seðlabankans
því yfir, að í framtíðinni yrði
tekin upp sveigjanlegri vaxta-
stefna til þess að mæta þeim
öru breytingum, sem verða á
verðlagi og gengi í heiminum,
og yrði þá tekið tillit til þeirr-
ar nauðsynjar að tryggja spari-
fé og almenningssjóðum eðli-
lega ávöxtun. Auk þeirra
ástæðna vaxtahækkunar, sem
áður er getið, var talið nauð-
synlegt að styrkja hið hækk-
aða gengi krónunnar (6%
gengishækkun 27. apríl) með
peningalegum aðgerðum, þar á
meðal hækkun vaxta. Sú ráð-
stöfun ein saman var þó ekki
talin nægja til þess að hamla
gegn vaxandi eftirspurn og
styrkja hið nýja gengi, og var
því einnig ákveðið að hækka
hámarksbindiskyldu innláns-
stofnana við Seðlabankann úr
20% í 21% heildarinnstæðna
frá og með 1. marz. Bindi-
skylda vegna innstæðuaukn-
ingar hélzt óbreytt 30%, og
urðu innlánsstofnanir að greiða
10% viðbótarbindingu vegna
innstæðuaukningar frá sama
tíma.
ÚTLÁNAÞENSLAN í FYRRA
Á öðrum stað í riti Fram-
kvæmdastofnunarinnar um
þjóðarbúskapinn er vikið að
ástandinu eins og það var í
fyrra. Þar er m. a. sagt, að
eins og á árinu 1971 hafi út-
lánaaukning bankakerfisins
verið helzta orsök peninga-
þenslunnar, en gjaldeyriskaup
umfram sölu hafi einnig haft
nokkur áhrif.
Útlánaþenslan 1972 stafaði
eingöngu af auknum útlánum
innlánsstofnana, enda þótt út-
lán hafi aukizt nokkru minna
hlutfallslega 1972 en árið áður.
Útlánaþenslan hefði þannig
orðið meiri, ef Seðlabankinn
hefði ekki dregið úr sínum út-
lánum. Aukning eigin fjár
bankakerfisins dró einnig úr
útlánaþenslunni, svo og inn-
stæðuaukning sjóða í vörzlu
Seðlabankans. Áhrif innstæðu-
aukningar sjóða (aðallega
Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðar-
ins) í vörzlu Seðlabankans
voru miklu minni 1972 en árið
áður, þar sem innstæður þess-
ara aðila jukust aðeins um 55
m. kr. árið 1972, en árið 1971
hafði aukningin numið 943 m.
kr.
Stefna Seðlabankans á árinu
1972 mótaðist af viðleitni til
aðhalds í peningamálum. Hag-
stæð greiðsluafkoma ríkissjóðs
og ríkisstofnana, séð yfir árið
í heild, samfara erfiðri lausa-
fjárstöðu banka og versnandi
greiðslujöfnuði gagnvart út-
löndum, stuðlaði að auknu pen-
ingalegu aðhaldi á árinu 1972.
í ársbyrjun 1972 voru vextir
af almennum innstæðum inn-
lánsstofnana hjá Seðlabankan-
um hækkaðir. Snemma á ár-
inu 1972 gerði Seðlabankinn
samkomulag við viðskipta-
bankana um takmörkun út-
lánaaukningar. Var að því
stefnt, að bankarnir ykju ekki
útlán sín um meira en 14-16%
á árinu 1972. Frá 1. apríl
voru erlend vörukaupalán tak-
mörkuð á þann hátt, að heim-
ild til þriggja mánaða greiðslu-
frests var afnumin á nokkrum
vörutegundum, þ. m. t. á bygg-
ingarvörum. Var þeim tilmæl-
um beint til viðskiptabank-
anna, að þeir veittu ekki inn-
flytjendum lán, sem kæmu í
stað þeirra vörukaupalána, sem
ekki voru lengur heimil. Þá
gaf ríkissjóður út í fyrsta
skipti ríkissjóðsvíxla í byrjun
maí að upphæð 300 m. kr. með
gjalddaga í árslok. Seðlabank-
inn keypti þessa víxla með
endursölu til innlánsstofnana
að markmiði. Þessi útgáfa og
sala ríkissjóðsvíxla hafði tví-
þættan tilgang: Annars vegar
að skana bönkum og sparisjóð-
um aukna möguleika til ávöxt-
unar fjár, en hins vegar að
takmarka peningaútstreymi frá
Seðlabankanum til að mæta
fjárþörf rikissjóðs, að því
marki sem ríkissjóðsvíxlar
væru seldir innlánsstofnunum.
ÚTLÁNAAUKNINGIN 5%
FRAM ÚR ÁÆTLUN
Staða ríkissjóðs og ríkis-
stofnana gagnvart Seðlabank-
anum batnaði um tæpar 300
m. kr. árið 1972 í heild, þó
að um mikla árstíðasveiflu hafi
verið að ræða að venju. Lán
Seðlabankans til opinberra fyr-
irtækja og sveitarfélaga dróg-
ust saman um tæpar 530 m.
kr. á árinu 1972. Stafaði þessi
samdráttur nær eingöngu af
endurgreiðslu Landsvirkjunar
á skammtíma fyrirgreiðslu
Seðlabankans frá fyrra ári.
Lán til fjárfestingarsjóða juk-
ust hins vegar um tæpar 300
m. kr., fyrst og fremst til Fisk-
veiðasjóðs.
Útlán innlánsstofnana jukust
um 19,5% (3819 m. kr.) á ár-
inu 1972, og varð aukningin
hjá viðskiptabönkunum 20,3%
og sparisjóðum 16,7%. Útlána-
aukningin 1972 varð nokkru
minni en árið áður, er aukn-
ingin nam 22%. Eins og fyrr
greinir, var að því stefnt, að
viðskiptabankarnir ykju ekki
útlán sín meira en um 14-16%
á árinu 1972. Reyndin varð
hins vegar sú, að útlánin fóru
um 5% fram úr áætlun. Samt
sem áður var útkoman betri en
árið áður, þegar útlán við-
skiptabankanna fóru um 10%
fram úr áætlun.
H3I
Electrolu^
Frystikista
310 Kr.
4
• 'Y
¥
Electrolux Frystikista TCI14
310 lítra, Frystigeta
21,5 kg á dag. Sjálfvirkur hita-
stillir (Termostat). Öryggisljós.
Ein karfa. Útbúnaður til að fjar-
lægja vatn úr frystihólfinu. Seg-
ullæsing. Fjöður, sem heldur
lokinu uppi.
Vörumarkaöurinn hí.
r
14
FV 8 1973