Frjáls verslun - 01.08.1973, Blaðsíða 31
Hvernig er þeim í stórum
dráttum háttað?
— Útbúnað í sjálfvirku
stöðvarnar kaupum við mest
frá L. M. Ericson í Svíþjóð og
ennfremur mest af talfærun-
um. Þýzka fyrirtækið Siemens
gerum við líka mikil viðskipti
við í tækjabúnaði en til fróðr
leiks má geta þess, að venju-
legt símatæki til heimilisnota
kostar 3000-—4000 krónur í
innkaupi og símritunartæki
eins og fyrirtæki hafa vegna
telex-sambandsins kostar um
300 þús. Jarðstrengi og ýmsan
annan búnað kaupum við svo
frá mórgum framleiðendum í
ýmsum löndum.
Viðskipti okkar við L. M.
Ericson hafa verið mjög góð
og við fáum kannski betri til-
boð frá þeim í ýmsum tilvik-
um en símstöðvar heima fyr-
ir. Við verzlum beint við þetta
fyrirtæki eins og önnur og er
það samkvæmt venju, sem
skapazt hefur hjá símastjórn-
um í Evrópu. En við leggjum
okkur fram um að halda
tengsium við aðra framleiðend-
ur. Þannig höfum við keypt
símritunartæki frá Olivetti á
Ítalíu og venjuleg símatæki frá
Belgiu, svo að dæmi séu nefnd.
Samkeppnismöguleikum höld-
um við alltaf opnum.
— Hefur orðið áberandi
samdráttur í póstsendingum
hér á landinu?
— Póstsendingum fjölgar, þó
að hægt sé. Þeim fjölgaði um
546 þúsund eða 2,9% í fyrra.
Það er greinilegt, að íslending-
ar nota póstinn minna en tíðk-
ast í nágrannalöndunum en
grípa frekar til símans.
— Það er ekki óalgengt, að
kvartað sé undan seinagangi í
póstafgreiðslu hér innanlands
og menn geti nefnt dæmi um
póst, sem berst miklu hraðar
að úr fjarlægum löndum en
milli staða innanlands. Hvað
veldur því?
— Póstur fer alltaf með
fyrstu ferð og nú er flugið not-
að í æ ríkara mæli. Tryggð
ihafa verið sérstök póstflug í
framhaldi af áætlunarflugi um
Vestíirði, Norðurland og Aust-
urland. Við þekkjum dæmi
þess, að flugferðir hafi
fallið niður vegna veðurs og
þegar fært var orðið hafi far-
þegar verið látnir ganga fyrir
en póstur skilinn eftir. Teknar
hafa verið upp viðræður við
viðkomandi aðila, sem ég vona
að leiði til aukins hraða og
öryggis í meðferð á póstinum.
í sambandi við samanburð
við útlönd verður að hafa hug-
fast, að í mörgum tilfellum eru
greiðari samgöngur við staði
erlendis en hér innanlands.
— Og a'ð lokum, póst og
símamálastjóri. Hvert er helzta
framtíðarmál póst- og síma-
málastjórnarinnar?
— Fyrir utan endui’bæturn-
ar á símakerfinu er einna
brýnast að byggja nýtt sund-
urgreiningarpósthús í Reykja-
vík, þar sem afgreiðsla færi
fram á öllum pósti, bæði
almennum bréfum, bögglum
og tollpósti. Samgönguráð-
herra hefur skipað nefnd
til að undirbúa þetta mál
og leita eftir heppilegri stað-
setningu. Það er einsýnt,
að nýtt aðalpósthús þarf að
vera nálægt flugstöð og er ég
að gera mér vonir um að það
geti risið í vestanverðri Öskju-
hlíðinni.
Svo má til gamans nefna að
við æt.lum að koma upp póst-
og shnaminjasafni í gömlu lög-
reglustöðinni við Pósthús-
stræti, en þar var eitt sinn að-
setur pósts og síma. Vonandi
verður safnið tilbúið á næsta
ári.
vélsagir.
Fljótvirkar og léttar
í medförum.
711
Bestsaw
□5TER
Leitid upplýsinga
hjá:
G. J. FOSSBERG,
vélaverzlun h.f.
Skúlagotu 63
Sími 18560
Ft
J.y JS» 'v
8’
fíllll ; - .;. - > . '
71^
:: r ■■
S :t\ ■
■ tÆ- 'I ' r
FV 8 1973
31