Frjáls verslun - 01.08.1973, Blaðsíða 85
i-rysfikistur og frystiskápar
FV. kynnir urval frystikista og frystiskápa
HEKLA H. F.
Hekla h. f. á Laugavegi 170
selur frystikistur frá finnska
fyrirtækinu Rosenlew en þser
eru búnar dönsku Danfoss
frystikerfi. Þær eru fáanlegar í
þremar stærðum, 270 lítra
sem kosta 36.100, 350 lítra sem
kosta 41.000 og 530 lítra sem
kosta 51.400.
Minnsta kistan, 270 lítra, er
85 cm há, 106 cm breið og 60
cm djúp. Miðstærðin, 350 lítra
er 90 cm há, 60 cm djúp og
123 cm breið og sú stærsta er
einmg 90 cm há og 60 cm djúp
en 176 cm breið. Hverri kistu
fylgja 2 geymslukörfur. Lok
kistanna hentar vel sem vinnu-
borð.
Hekla h. f. annast alla vara-
hluta- og viðgerðarþjónustu.
Innan tíðar mun fyrirtækið
einnig hafa á boðstólum frysti-
skápa frá Kenwood.
FONIX
O. KORNERUP HANSEN S. F.
Fönix við Suðurgötu selur
frystikistur frá danska fyrirtæk-
inu Atlas. Þær eru fáanlegar í
þremur stærðum, 210 lítra sem
kostar 34.670, 310 lítra sem kost-
ar 39.850 og 510 lítra sem kostar
48.950. Þær hafa allar sama
dýptarmál 63 cm en breiddin
er hlutfallslega 79.5 cm, 105 cm
og 160 cm.
Allar kisturnar hafa hrað-
frystihólf og auk þess sérstaka
hraðfrystistillingu, sem er not-
uð þegar frysta á mikið magn.
Þær eru gerðar úr stáli með
innra byrði úr létthömruðu áli
og lok þeirra er sterklega húðað
þannig að það má nota sem borð.
Froststillir á þeim heldur jöfnu
kuldastigi, en öryggisljós blikk-
ar ef írávik verða. Frystigeta
Atlas kistanna er eftir stærð
40, 50 og 70 kg pr. 48 klst.
Innflytjandi sér um vara-
hluta- og viðgerðarþjónustu.
VÖRUMARKAÐURINN H. F.
Vörumarkaðurinn h. f. í Ár-
múla selur frystikistur frá El-
ectrolux, sem framleiddar eru í
Danmörku, þó þetta fyrirtæki
starfi aðallega í Svíþjóð og
eigi þar flestar verksmiðjur
sínar.
Frystikisturnar fást í fjórum
stærðum, þ. e. 210 lítra sem
kosta 29.900.00, 310 lítra sem
kosta 34.700.00, 410 lítra sem
kosta 39.300.00 og 510 lítra sem
kostar 44.300.00. Þær eru allar
hvítar en sambyggðir kæli- og
frystiskápar eru fáanlegir í kop-
arbrúnu og grænu.
Allar eru þær smíðaðar úr
sænsku stáli en innra borð
þeirra er úr hömruðum álplöt-
um. Af tækninýjungunum má
sérstaklega nefna affallsrör,
sem veitir ísvatninu út úr kist-
unum, þegar þær eru þíddar,
en þó er óþarft að þurrka
upp úr kistubotninum.
Vörumarkaðurinn annast
varahlutaþjónustu, en um við-
gerðir sér Sigurður Bjarnason,
Lindargötu 29.
Umboðsmenn fyrir Electrolux
eru víða um landið.
FV 8 1973
85