Frjáls verslun - 01.08.1973, Blaðsíða 39
Scrcfni:
Frjáls verzlun leggur enn á ný land undir fót og fer víða um land að þessu sinni til við-
ræðna við forystumenn í atvinnulífinu og sveitarstjórnarmálum. Að þessu sinni er komið
við á Suðurnesjum, Vesturlandi, Vestfjörðum og Norðurlandi, allt austur til Siglufjarðar.
Er þetta einn þáttur í viðleitni blaðsins til að gefa lesendum sínum sem gleggsta mynd af
þörfum og áhugamálum fólksins utan höfuðborgarinnar .
Sandgerði:
Öngþveiti í hafnarmálum
í SandgcrSi bua nú um 1100
manns og er fjölgun þar liæg.
Að sögn Alfreðs G. Alfreffsson-
ar sveitarstjóra er ein aðal-
ástæða þess sú, að þar ríkir húr>-
næðisskortur og einnig að
gamla fólkið flytzt í hurtu að
loknu erfiðu lífsstarfi í fisk-
vinnu en unga fólkið er kyrrt
og byggir upp. I»ar eru nú í
smíðum milli 30—40 íbúðir og
er það mikil fjölgun miðað við
undanfarin ár. Þá er verið að
taka í notkun 10 hús Viðlaga-
sjcðs, sem þar voru reist.
Á síðustu vetrarvertíð var
landað í Sandgerði um 31 þús.
tonnum af fiski, 15.500 tonnum
af bolfiski en 14.200 tonnum af
loðnu. Einnig 1.300 tonnum af
humar og rækju. Þar ríkir
megnasta öngþveiti varðandi
hafnarmál, þar sem að meðaltali
landa í Sandgerði milli 50 og
60 bátar á dag allan ársins
hring, en höfnin sem bæði er
lítil og gömul, rúmar aðeins 5
-—6 báta, og þar af eru oftast
1—2 rúm upptekin af bátum,
sem verið er að gera við. Ao
sögn Alfreðs þykir þeim Sand-
gerðingum þeir vera mjög af-
skiptir i íjárveitingum til hafn-
argerðar, en á síðustu 25 árum
hefur þeim aðeins verið úthlut-
að 13 millj. króna til hafnar-
gerðar frá ríkinu. Þó örlar nú á
smá úrlausn, því byrjað er þar
á dýpkunarrannsóknum í sarn-
bandi við áætlun um að þre-
falda hafnarrýmið í Sandgeröi
á næstu 4 árum.
Frá Sandgerði eru gerðir út
26 bátar. Auk þess landa þar að
staðaldri um 20 rækjubátar.
Þar eru starfandi 3 frystihús
og eru Miðnes h.f. og Útgerðar-
stöð Guðmundar Jónssonar
þeirra stærst. Tvær rækjuverk-
smiðjur eru þarna og 6 salt-
fiskverkunarstöðvar. Þá er þar
starfrækt fiskimjölsverksmiðja.
Um 50% þess afla sem landað
er í Sandgerði er flutt með bíl-
um til annarra staða, þar sem
hann er unninn.
STÁLIÍÁTUR f SMÍÐUM.
Skortur á vinnuafli er geysi-
mikill í Sandgerði og á það
jafnt við um allar atvinnu-
greinar. Vélsmiðjan Hörður,,
sem starfað hefur í 7—8 ár,
er eitt þeirra fyrirtækja sem
líður vegna þess, en þar var
nýlega hafizt handa viði að
smíða stálbát en verkinu
hefur miðað seint sökum
anna við bátaflotann. Af
öðrum iðnfyrirtækjum í Sand-
gerði er ekki mikið, þó er þar
trésmíðaverkstæði og raftækja-
vinnustofa. Tvær verzlanir
eru í bænum, en að sögn sveit-
arstjórans gerir nálægðin við
Keflavík það að verkum að sár-
verzlanir þrífast illa í Sand-
gerði. Bæjarbúar sækja mikið
ýmsa þjónustu til Keflavíkur
sem og aðrir útgerðarstaðir á
Reykjanesskaganum. Nú í sum-
ar er verið að leggja olíumöl
á vegarkaflann milli Keflavík-
ur og Sandgerðis, s em Sand-
gerðingar munu fagna mjög.
Á vegum sveitarfélagsins hef-
ur mikið verið unnið í sumar
að gatna- og holræsagerð fyrir
ný íbúðarhús. Þá er á þess veg-
um fyrirhuguð bygging íþrótta-
húss og húss fyrir kennarastof-
ur við barna- og unglinga-
skólann á staðnum, en þar
geta unglingarnir lokið skyldu-
námi en sveitarfélagið rekur
síðan skólabíl sem keyrir þá
ungíinga til Keflavíkur sem
ljúka vilja landsprófi eða gagn-
fræðanámi. Þá er einnig í
byggingu slökkvistöð í Sand-
gerði.
Sandgerðingar mega teljast
mjög vel settir með læknisþjón-
ustu. Þeir eru meðeigendur i
sjúkrahúsi Keflavíkurlæknis-
héraðs og frá Keflavík koma
læknar til Sandgerðis og hafa
þar viðtalstíma 4 daga í viku.
Nálægðin við Keflavík gerir
einnig auðvelt að ná í lækni á
öðrum tímum.
FV 8 1973
39