Frjáls verslun - 01.08.1973, Blaðsíða 48
Borgarnes séð úr Brákarey.
I Borgarnesi
— er beðið eftir brú, sem stytta mun
vegalengdina til Reykjavíkur um 30 km.
Óviða á landinu er kaupfé-
lagsvaldið jafnáberandi og í
Borgarnesi. Kaupfélag Borg-
firðinga rekur næstum alla
verzlun í Borgarnesi og hef-
ur auk þess tvö útibú á Akra-
nesi, eitt á Hellissandi, annað
í Stykkishólmi og hið briðja á
Vegamótum á Snæfellsnesi. At-
vinnurekstur í Borgarnesi er
að verulegu Ieyti á vegum
kaupfélagsins og bændur í
nærliggjandi héruðum gera svo
til öll viðskipti sín þar, —
Ieggja inn allar afurðir hjá
kaupfélaginu og taka þaðan
út vörur í staðinn.
Þær eru margar sögurnar, sem
sagðar eru af viðskiptum bænd-
anna og starfsmanna kaupfé-
lagssins og dæmi nefnd um það,
að hafi bóndi viljað taka út
reiðufé aif mjólkurreikningi
sínum, hafi yfir hann dunið
spurningar um hvað hann ætl-
aði að gera við peningana, hvar
hann ætlaði að eyða þeim o. s.
frv.
Með hnýsni af þessu tagi hef-
ur kaupfélaginu líka tekizt að
hafa stjórn á félagsmönnum sín-
um og viðskiptaaðilum, sem
ekki kæra sig um að standa í
neinum útistöðum við það.
MJÓLK í BENZÍNSKÁLA.
Lítils samræmis virðist gæta í
viðskiptareglum, þegar kaupfé-
lagið á í hlut annars vegar og
einkaframtakið hins vegar. Sala
á neyzlumjólk er að sjálfsögðu
öll á hendi kaupfélagsins. Einka-
verzlunin hefur ekki fengið
hana til sölu. Og á sama tíma og
Verzlunin Stjarnan í Borgar-
nesi er einkafyrirtæki, sem
verzlar með húsgögn, heimilis-
tæki, skó, leikföng og ýmsa
gjafavöru. Þetta fyrirtæki var
stofnað árið 1967 sem hlutafélag
og hét Bækur og húsgögn og
starfaði í leiguhúsnæði. Verzl-
unin Stjarnan tók síðan til starfa
í janúar 1970 og eru eigendur
hennar þeir Björn Arason og
Bragi Jósafatsson.
núverandi landbúnaðarráð-
herra, fyrrum sveitarstjóri í
Borgarnesi, fór mörgum orðum
um nauðsyn fullkomnustu verzl-
unaraðstöðu til mjólkurdreifing-
ar í ræðu á Alþingi, var verið
að selja mjólk í benzínskála Esso
í Borgarnesi. Ekki nóg með það,
heldur hefur þar verið notazt
við kæliborð, sem áður var í
eigu verzlunarfélags, er varð
undir í samkeppninni við kaup-
félagið. Verzlunarfélagið fékk
ekki á sínum tíma að selja mjólk
á þeim forsendum að það hefði
ekki nægilega góða aðstöðu til
að geyma hana, en notaði þó
þetta sama kæliborð.
í fyrra réðust þeir félagar í
byggingu nýs verzlunarhúss,
sem er á tveimur haeðum, 300
fermetrar hvor. Á þeirri
neðri er lager, en uppi eru
seldar þær vörutegundir, sem
að framan greindi. Er skósalan
veigamesti liðurinn og þar næst
húsgögnin. Kaupfélag Borgfirð-
inga er ekki með þessar vörur
og styrkir það að sjálfsögðu að-
stöðu Stjörnunnar og gerir hún
Endurskipulagning og
þrotlaus vinna
48
FV 8 1973