Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.08.1973, Page 35

Frjáls verslun - 01.08.1973, Page 35
Greinar og wiAlöl Er hagvöxtur skaðlegur? eftir dr. Guðmund IVIagnússon, prófessor Það er í tízku að hallmæla hagvexti. Sumir telja ýmist að hagvöxturinn sé o£ mikill eða honum verði að fórna til að geta sinnt félagslegum þörfum. Heyra má hugsjónamcnn segja, að stefna þeirra sé óháð efna- hag og að hún miðist einvörð- ungu við æðra og fegurra mannlíf. En mikið skortir á, að rökvísi þessara manna jafn- ist á við andagiftina í umræð- um um hagvöxtinn, kosti hans cg galla. ÁGREININGUR UM MARKMIÐIN Mér virðist bera meira á á- greiningi um markmið þjóðfé- lagsins en áður. Talað er um alls nægtaþjóðfélagið, þar sem mað- urinn hafi étið yfir sig af hvers kyns varningi, en hafi beðið tjón á sálu sinni. Tönnlazt er á, að félagsleg markmið hafi verið látin fyrir róða og fjár- græðgin komið mönnum í koll. Nóbelsverðlaunahöfundurinn í bókmenntum á síðasta ári, Hein- rich Böll, hefur t. d. áfellzt ,,af- kastatakmarkið" harðlega. Hann segir sem svo, að fram- leiðsla sífellt meiri og nýs neyzluvarnings valdi því, að maðurinn leggi æ harðar að sér til að öðlast þær. Þetta sé víta- hringur, sem stappi sjálfsmorði næst. Nær sé að að semja sig að siðum rithöfunda, sem setji gæðin og mannlífið ofar fram- leiðsluaukningu og sérgæzku. HAGVAXTARFÓRNIR Heyra má enduróm af skoð- unum Bölls hér á landi. Margt má um þetta viðhorf segja, en hér skal aðeins bent á nokkur atriði. Þegar talað er um að slaka á hagvextinum, eða jafn- vel fórna honum alveg, virðist sem menn geri sér ekki alltaf grein fyrir staðreyndum. Reynslan bæði hér á landi og í nágrannalöndum sýnir, að kröf- ur til samneyzlu og félagslegra þarfa aukast með bættum lífs- kjörum, sbr. eftirspurn eftir menntun og heilbrigðisþjón- ustu. Jafnframt eykst geta þjóð- félagsins til að sinna þessum þörfum með bættum efnahag. Þegar dregið hefur úr vexti þjóð- artekna, hefur yfirleitt orðið að slaka á öðrum markmiðum, svo sem samneyzlu og félagslegu ör- yggi. Þetta er skiljanlegt, því að ekki er unnt að sækja fram að þessum markmiðum að ó- breyttum þjóðartekjum, nema hert sé að einhverjum í þjóðfé- laginu. Það er átakanlegt að heyra sífelldan klið um að slaka á hagvextinum til að forðast mengun, fátækt og spillingu. Hagvöxtur ætti ekki að vera skilgreindur, nema innihald hans sé tekið fram, eins og vara er ekki skilgreind með verðinu einu saman, heldur einnig gæð- um, stærð, lögun, útliti o. fl. Því væri nær að tala um að auka hagvöxtinn eða gera hann sem mestan, þó þannig að vissum hliðarskilyrðum sé fullnægt, þ. e. a. s. tiltekin bönd eru sett á innihald hans með tilliti til um- hverfisverndar, tekjujöfnunar o. s. frv. SÖKUDÓLGURINN ANNAR Reyndar held ég, að hagvöxt- urinn sé gerður sökudólgur mannlegra vonbrigða í stað ó^ jafnrar tekjuskiptingar og rangrar framleiðslutilhögunar. Þessu til stuðnings má benda á, að samtímis því, sem talað er um að slaka á framleiðslukröf- unum, er þrýst á með 20% kaup- hækkun. Ekki er heldur ólík- legt, að eftirspurnarmynztrið yrði nokkuð öðruvísi, ef tekjur væri jafnari og því aðrar vörur framleiddar, eða réttar sagt í öðrum hlutföllum. Sömuleiðis leyfi ég mér að draga í efa á dögum alþjóðlegr- ar samhjálpar, hvort það sé ,;sið- ferðilega rétt“ að draga úr af- köstunum, þegar þjóðir þriðja heimsins svelta heilu og hálfu hungri. Birtist skoðunin ekki í skrípamynd í afstöðu sjömenn- inganna í MA til eldgossins á Heimaey, þegar þeir töldu gosið hafa verið til góðs? ÍSLENDINGASÖGUR Ekki skal ég gera lítið úr framleiðslugæctm. Þar hljóta þó fyrirtækin að verða að fara eftir neytendum að meira eða minna leyti. Eða af hverju eyða þau öllum þessum fúlgum i söfn- un og miðlun upplýsinga? Hver yrði kostnaðurinn fyrir þjóðfé- ið, ef fyrirtækin hættu að framleiða annað en það, sem valdhafarnir teldu nauðsynlegt, þegar skilin milli þurftarvöru og munaðarvöru eru að verða ó- ljós? Heinrich Böll virðist gera ráð fyrir, að allir, sem fengju meira frí frá daglegu brauðstriti færu heim að lesa íslendingasögurn- ar. Lesandinn getur sjálfur dæmt um þetta með því að líta á afleiðingar styttingu vinnuvik- unnar í 40 stundir hér á landi. Svo veit ég ekki betur en tals- verð samkeppni sé ríkjandi á bókmenntasviðinu og að þeir, sem þar ná langt, verði að beita sjálfa sig sjálfsaga og vinna markvisst. Hætt er við, að verði slakað til á einu sviði í afköst- um (tiltekin gæði áskilin), verði afköstin alls staðar minni en ella — lika á bókmenntasviðinu. Að hinu leytinu er það hag- fræðilegt lögmál, að því meira sem maðurinn hefur af tiltekn- um gæðum, þeim mun minna leggur hann upp úr meiru af hinu sama, sbr. að erfitt er að vera meira en í einum fötum í einu og að tíminn til að njóta lífsins gæða er takmarkaður. FV 8 1973 35

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.