Frjáls verslun - 01.08.1973, Side 40
Úr vinnslusal frystihúss Sjöstjörnunnar. Það er eitt hið fullkomnasta sinnar tegundar á landinu.
Sjöstjarnan h.f. Ytri - IMjarðvík:
Stundar útgerð og alhliða fiskverkun
Hjá Sjöstjörnunni h. f. í Ytri-
Njarðvík var á síðasta ári unn-
ið úr 6300 tonnum af fiski. Mest-
ur hluti þessa magns fór til fryst-
ingar en einnig nokkuð í salt-
fisk og skreið. Þar voru einnig
unnin 88 tonn af humarhölum.
Sjöstjarnan h. f. á nú og rekur
4 báta frá 60—100 lestir að
stærð og á auk þess hlut í þeim
fimmta, sem er 267 tonn.
STRAFSEMIN NÚ NÆSTUM
ÖLL í YTRI-NJARÐVÍK.
Sjöstjarnan h. f. var stofnuð
árið 1047 og var þá skrásett í
Reykjavík. Arið 1964 urðu eig-
endaskipti að fyrirtækinu og eru
núverandi forstjórar Kristinn og
Einar Kristinssynir. Starfsemin
fer nú öll fram í Y-Njarðvík, ut-
an skrifstofurnar sem eru í
Keflavík. Hún fór að mestu
leyti fram í Keflavík, í frysti-
húsi sem Sjöstjarnan átti þar,
til haustsins 1972, þegar það hús
var selt, en tveim árum áður
hafði fyrirtækið fest kaup á
frystihúsi í Njarðvík, sem það
starfrækir nú. Hefur það hús
verið stækkað og endurnýjað og
má heita að ekkert í því sé eldra
en fjögurra ára. Nú alveg ný-
lega voru teknir í notkun nýir
viðbótarfrystiklefar.
Aflinn, sem unninn er hjá
Sjöstjörnunni, er að miklu
leyti keyptur af öðrum.
Eins og áður sagði framleiðir
Sjöstjarnan h. f. að rnestum
hluta freðfisk, sem hún selur
sjálf og þá aðallega til Banda-
ríkjanna. Löndun aflans úr
eigin bátum fer aðallega
fram í Grindavík á vetrarvertíð-
um en einnig í Keflavík og
Njarðvík.
Forráðamenn Sjöstjörnunnar
h. f. velta nú um þessar mundir
fyrir sér möguleikum á breyt-
ingum í útgerðinni og þá aðal-
lega kaupum á skuttogara, en
ekkert hefur enn verið ákveðið
þar um.
ÍSLENZK FYRIRTÆKi ’73
Síærsta og útbreiddasta fyrirtækjaskrá
landsins.
Pantanir afgreiddar samdægurs.
FRJÁLST FRAMTAIi HF.
LAUGAVEGÍ 178. — SÍMAR: 82300 - 82302.
40
FV 8 1973