Frjáls verslun - 01.08.1973, Blaðsíða 58
Skagaströnd
Næg atvinna á Skagaströnd
Sveitarstjórinn á Skaga-
strönd, Lárus Guðmundsson,
var léttur í bragði þegar við
röbbuðum við hann á dögrmum.
Hann sagði að þar í sveit væri
nú uppgangstímabil miðað við
undanfarin erfiðleikaár. A
Skagaströnd eru nú í byggingu
17 íbúðarhús, allt einbýlishús,
og einnig er verið að byrja á
að reisa 1000 fermetra hús fyr-
ir Rækjuvinnsluna h.f. og von-
azt er til að þar verði hægt að
hefja starfsemi upp úr áramót-
um.
Þar verður aðaláherzla lögð
á rækjuvinnslu og niðurlagn-
ingu auk annarrar fiskvinnu.
Framkvæmdastjóri Rækju-
vinnslunnar er Guðmundur
Lárusson, en hann rekur einn-
ig Skipasmíðastöð Guðmund-
ar Lárussonar, sem stofnuð var
árið 1970. Þar vinna oftast 25
manns og smíða þeir 30 lesta
eikarbáta, sem seldir hafa ver-
ið víða um land. Á Skagaströnd
hefur verið eitt frystihús til
þessa, Hólanes h.f. oger nú ver-
ið að gera á því umfangsmikl-
ar endurbætur. Þá er Kaupfé-
lag Austur-Húnvetninga að
reisa á Skagaströnd nýtt verzl-
unarhús.
NÝR TOGARI
VÆNTANLEGUR.
Skagstrendingur h.f., sem er
hlutafélag í eigu svo til alls
bæjarfélagsins, er nú að bíða
eftir nýjum togara, 460 lesta,
sem það hefur fest kaup á frá
Japan. Það fyrirtæki hefur gert
út undanfarið einn 2,50 lesta
bát, Örvar, sem verið hefur á
togveiðum eingöngu. Frá Skaga-
strönd eru gerðir út 5 bátar,
20—50 lestir að stærð, og
stunda þeir rækjuveiðar á vet-
urna en handfæraveiðar á
sumrin. Einnig eru þaðan gerð-
ar út nokkrar trillur. Að sögn
Lárusar er hafnarstæði á Skaga-
strönd gott og höfnin ágæt að
öðru leyti en þvi, að hún er
grunn, og verður of grunn fyrir
hinn nýja skuttogara sem vænt-
anlegur er. Hann sagði það því
vera brýnt hagsmunamál sveit-
arfélagsins að hún yrði dýpkuð
hið bráðasta.
Á Skagaströnd, eða Höfða-
Lárus Guðmundsson,
sveitarstjóri á Skagaströnd.
kaupstað, búa nú 550 manns.
Þarhefur á undanförnum árum
verið mikið atvinnuleysi séi-
staklega á veturna og hafa
menn þaðan orðið unnvörpum
að sækja vinnu til Suðurlands-
hafna á vetrarvertíðum. En
þetta horfir mjög til bóta meö
þeim nýju atvinnutækjum og
fyrirtækjum, sem nú eru starf-
andi. Þar er, auk fiskvinnslu,
starfrækt saumastofa sem ber
nafnið Vioia. Þar vinna 12—15
stúlkur við að sauma kápur og
jakka íyrir Álafoss. Barna- og
unglingaskóli er á Skagaströnd
og geta unglingar lokið þar
landsprófi. Læknisþjónusta er
frá Blönduósi og hefur lækmr
þaðan viðtalstíma 2svar í viku
á Skagaströnd.
í vetur féllu og brotn-
uðu áttatíu símastaurar milli
Blönduóss og Skagastrandar í
aftakaveðri. Er nú unnið að
því að leggja jarðsímastreng á
þessari leið sem verða mun til
aukins öryggis fyrir byggðar-
lagið. Einnig er verið að leggja
þrjár nýjar brýr á þennan sama
vegarkafla.
Skagaströnd.
58
FV 8 1973